152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:32]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, það er gott að við höldum áfram að vera sammála, ég og hv. þingmaður. Mig langaði aðeins að fjalla um það sem hv. þingmaður nefndi fyrst í ræðu sinni, sem var það hvernig kröfur um þekkingu og reynslu stjórnarmanna gætu haft áhrif á möguleika á að finna hæft og gott fólk til starfsins. Eitt af því sem ég hjó eftir í frumvarpinu er að það er verið að skera dálítið rösklega niður fjölda stjórnarmanna miðað við hvernig það var 2007. Þá voru níu fulltrúar í stjórn og þar af voru ekki tveir áheyrnarfulltrúar, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á að fulltrúar starfsmanna séu. Spurning mín til hv. þingmanns er: Til þess að finna nóg af fólki sem uppfyllir kröfur þurfum við ekki að fjölga í stjórninni? Það er fyrri spurningin. Seinni spurningin er: Telur hv. þingmaður að ráðherra ætti að skipa alla stjórnarmenn eða að einhverjir ættu að vera skipaðir af þinginu eins og tíðkaðist fyrir 2007?