152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:34]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst varðandi það sem ég sagði hér um þær kröfur sem gerðar eru til stjórnarmanna: Mér finnst þær of ítarlegar hér og ég sæki bara í fyrirmynd þegar kemur að hlutafélagalögunum. Mér finnst það nægjanlegt. Ég skil hvað menn eru að reyna að gera hér og hvað reynt er að gera. Það er verið að tryggja að það séu a.m.k. einhverjir í stjórninni sem hafi innsýn og þekkingu og reynslu úr heilbrigðiskerfinu og það er ekkert óeðlilegt. Það mætti líka velta því fyrir sér hvort ekki ætti þá að ganga enn lengra og segja að einn stjórnarmaður skuli hafa þekkingu og reynslu af rekstri heilbrigðisþjónustu eða spítala á erlendri grundu. Ég segi bara: Þegar við göngum svona langt þá erum við hugsanlega að útiloka fólk sem væri eftirsóknarvert í sjálfu sér að sæti í stjórn spítalans. Þetta er atriði sem ég held að nefndin eigi að skoða en ég hef ekki aðrar ábendingar en þetta, að menn hafi þetta í huga.

Varðandi fjölda stjórnarmanna, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson varpaði hér fram, þá held ég að það sé alveg nóg að hafa sjö. Ég held að það sé full fjölmennt að hafa níu, það getur leitt til þess að stjórnin verði ekki jafn virk og burðug. En kannski er þetta aftur pínulítið aukaatriði. Ég er hins vegar ekki á því að stjórnin eigi að vera skipuð með öðrum hætti en ég hef sagt áður, að það sé ráðherra sem skipi stjórnina. Hann ber ábyrgð á málaflokknum. Stjórnin ber ábyrgð gagnvart ráðherra og þannig finnst mér að þetta eigi eðlilega að vera, og forstjórinn ber síðan aftur ábyrgð gagnvart stjórninni sem réði hann til verka.