heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það kom fram í andsvörum áðan að það virtist vera að það væri eingöngu stjórn Landspítalans sem bæri ábyrgð gagnvart ráðherra. Ég les það ekki úr lögunum og það er ekki svo samkvæmt frumvarpinu. Það er alveg klárt mál að forstöðumaðurinn, forstjóri Landspítalans, ber ábyrgð gagnvart ráðherra skv. 38. gr. starfsmannalaga. Hann fær erindisbréf og í 2. mgr. 38. gr. segir orðrétt að hann beri ábyrgð á að stofnun sem hann stýrir starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf, hann beri ábyrgð á því að rekstrarútgjöld séu í samræmi við fjárlög o.s.frv. Ábyrgðin er því bæði stjórnar og forstjórans, en fyrst og fremst forstjórans svo það sé alveg klárt. Ég er sammála því að stjórnin hefur ekki boðvald gagnvart forstjóranum og hún ræður ekki forstjórann.
Ég hafði sérstakan áhuga á því sem hv. þingmaður sagði um virkt innra eftirlit. Málið er mér aðeins skylt í tengslum við starfsferil minn. Virkt innra eftirlit er ekki stjórn. (Gripið fram í.) Já, það er ekkert virkt, það er eftirlit. Virkt innra eftirlit ætti að vera í innri endurskoðun. Ég trúði því hreinlega ekki þegar ég heyrði að ekki væri innri endurskoðandi á Landspítalanum. Þar á hið virka innra eftirlit að vera. Svo getum við líka farið aðeins neðar, farið inn í hið virka innra eftirlit sem er þá í regluvörslu eða áhættustýringu sem er þá bara áhættustýringardeild. Síðan kemur innri endurskoðandi og svo kemur stjórnin. Þetta er svona „three lines of defence“, getum við kallað það.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort ekki væri nægjanlegt að byrja að styrkja stjórn Landspítalans með því að hafa innri endurskoðanda og sjá hvernig það virkar, og jafnvel virkt innra eftirlit með starfsmönnum sem sinna innra eftirliti fyrir forstjórann, en ekki að setja upp (Forseti hringir.) eins konar ráðgjafastjórn sem á að vera honum til stuðnings, til skrafs og ráðagerða, (Forseti hringir.) ekki að það sé hreinlega verið að auka skrifræðið með þessari stjórn.