heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Ég hélt nú að ég hefði verið skýr þegar ég talaði um innra eftirlit. Það þýðir innri endurskoðun, þetta er bara annað orð, svo það sé alveg ljóst. Ég er að leggja það til, hv. þingmaður, að það verði skrifað inn í lögin að það verði innri endurskoðun, innra eftirliti, á Landspítalanum. Ég hygg að það skipti stjórnina og virkni hennar alveg gríðarlega miklu máli að það sé með þeim hætti og líka fyrir forstjórann. Að sama skapi er ég sannfærður um að ef við ætlum að stíga þetta skref, sem ég held að sé gæfuskref, þá eru tækifæri til að gera enn betur en fyrir liggur í frumvarpinu. Ef við erum að færa stjórninni þau verkfæri og þá ábyrgð að bera ábyrgð á rekstri Landspítalans fjárhagslega og líka á þeirri þjónustu sem veitt er verður stjórnin líka hafa það verkfæri að ráða og reka forstjórann og bera síðan ábyrgð gagnvart ráðherra, gagnvart löggjafanum og gagnvart almenningi. Þannig er þetta skynsamlegast.
Ég hygg, án þess að ég hafi nú farið gaumgæfilega ofan í það, að t.d. megi horfa til þess hvernig gert er hjá Landsvirkjun. Ég hygg að það sé rétt hjá mér að það sé stjórn Landsvirkjunar sem ræður forstjóra og það séu ekki starfsmannalög sem ráða þar. Menn geta svo deilt um það hvernig menn skipa til stjórnar en þar held ég að séu níu stjórnarmenn. En látum það liggja á milli hluta. Svo það sé skýrt, hv. þingmaður, er ég að leggja til að inn í frumvarpið verði skrifaður texti um innra eftirlit, innri endurskoðun.