heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við erum algerlega á sömu blaðsíðu. Ég er algerlega sammála honum um að það er grundvallaratriði, ef við ætlum að setja sjö manna stjórn þar sem einungis fimm hafa atkvæðisrétt, að sett verði inn ákvæði um innri endurskoðanda og virkt innra eftirlit. Ég tel reyndar að það ætti að vera ákvæði um innri endurskoðanda sem væri þá til upplýsingar fyrir stjórnina og líka að gerð yrði krafa um að innra eftirlit verði forstjóra, sem er nær rekstri spítalans, til halds og trausts. Það er grundvallaratriði. Mér finnast þetta ekki nægilega fullkomin lög hvað það varðar. Það er einfaldlega ófullnægjandi að hafa stjórn sem er eiginlega bara til skrafs og ráðagerða og til einhvers konar faglegs stuðnings. Það breytir því ekki að það eru bæði forstjórinn og stjórnin sem bera ábyrgð gagnvart ráðherra. Fyrst og fremst forstjórinn, það er alveg kristaltært í 38. gr. starfsmannalaga að það er þannig sem það virkar. Við erum með tvöfalt kerfi, við erum að auka skrifræðið þar sem forstjórinn ber ábyrgð gagnvart ráðherra, stjórnin ber ábyrgð gagnvart ráðherra og formaður stjórnar þarf að upplýsa ráðherra reglulega um starfsemina.
Hv. þingmaður sagði í andsvörum áðan, og ég veit að hann var að vitna til orða minna — ég er ekki hlynntur því að þarna komi opinbert hlutafélag, ohf., alls ekki. Það segir í frumvarpinu að litið sé til stjórnskipulags á sjúkrahúsum annars staðar á Norðurlöndum. Ég get ekki séð til hvaða lands verið er að líta, hvort það er Svíþjóð, Danmörk eða Noregur, með þessa fyrirmynd. Það væri gaman ef hæstv. ráðherra gæti upplýst um það, ég sé ekki hvaða fyrirmynd það er, hvert Norðurlandanna það er.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort þetta frumvarp sé ekki svolítið andvana fætt með skorti á valdboði, skorti á því að stjórnin ráði forstjórann og skorti á því að kveðið sé á um innri endurskoðun.