152. löggjafarþing — 53. fundur,  21. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[19:43]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst að því sem hv. þm. Eyjólfur Ármannsson sagði hér síðast: Nei, þetta frumvarp er ekki andvana fætt. Ég sagði hér áðan að ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að greiða götu þessa frumvarps þannig að það verði að lögum. Ég er hins vegar að vonast til þess að við náum saman um að gera þær breytingar sem ég tel nauðsynlegar og hugsanlega koma aðrar ábendingar, í umsögnum annarra aðila, sem við þurfum að taka tillit til.

Herra forseti. Ég bý líka svo vel að eiga hæstv. heilbrigðisráðherra sem hauk í horni. Hann laumaði að mér blaði sem ég hefði auðvitað átt að vita um og það er 65. gr. laga um opinber fjármál. Vert er að vekja athygli á því að ríkisaðilum, aðilum í A1-hluta og í A2-hluta, er skylt að vera með innri endurskoðun, samkvæmt lögum um opinber fjármál. Hins vegar hefur Félag um innri endurskoðun einmitt bent á það, og ég hygg að það hafi verið í samráðsgátt um frumvarpið, að því miður hafa ríkisaðilar ekki staðið sig í stykkinu við að byggja upp og koma innri endurskoðun fyrir, eins og lög um opinber fjármál gera í raun kröfu um. Ástæðan mun vera sú að enn hefur ekki litið dagsins ljós reglugerð sem byggir á þessari innri endurskoðun á. En stjórnandi slíkrar innri endurskoðunar á að vera með sérþekkingu, það er ekki gengið lengra, hann þarf ekki að vera löggiltur, á sviði endurskoðunar. Það breytir ekki hinu að þær ábendingar skipta miklu máli sem ég var með um að nauðsynlegt sé að skrifa ákvæði inn í það frumvarp sem við ræðum hér um að innra eftirlit, innri endurskoðun, skuli vera á Landspítalanum til stuðnings fyrir stjórn forstjóra og æðstu stjórnendur.