152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

Varamenn taka þingsæti.

[13:30]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Flokks fólksins, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, um að Inga Sæland, 7. þm. Reykv.s., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því tekur Helga Þórðardóttir sæti á Alþingi, en hún er 2. varamaður á lista flokksins í kjördæminu og víkur þá 1. varamaður á lista, Wilhelm Wessman, af þingi en hann hefur boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Helgu Þórðardóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.