152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:33]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Við erum aðeins að tala hér um þá gjá sem er á milli þess sem ráðherrar segja í fréttatímum og þess sem er í gangi hérna á þinginu. Hæstv. innviðaráðherra kallar eftir hærri auðlindagjöldum og aðgerðum gegn samþjöppun í sjávarútvegi. Hæstv. menningarráðherra vill hjálpa skuldsettum heimilum og leggja hvalrekaskatt á bankanna. Nú er hæstv. fjármálaráðherra líka farinn að viðurkenna þörfina á sértækum aðgerðum til að verja tekjulægstu hópana fyrir verðbólgu.

En hvað gerist svo hér á þinginu? Það hefur ekki komið fram eitt einasta stjórnarmál, eitt einasta þingmál frá ríkisstjórninni, sem endurspeglar þessar yfirlýsingar, ekki eitt einasta mál sem snýst um efnahag heimila vegna hækkandi verðbólgu og hækkandi vaxta, ekki neitt. Það er heldur ekkert slíkt á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, ekki neitt. Dagskráin hérna á þinginu endurspeglar einfaldlega ekki ástandið í samfélaginu svo að ég skora á forseta að tjónka við þessari verklausu stjórn.