um fundarstjórn.
Forseti. Tíminn okkar hér á þingi og í nefndum er mjög mikilvægur og það er mjög mikilvægt að ríkisstjórnin setji fram góða dagskrá um það hvaða mál hún ætlar að leggja fyrir þingið með góðum fyrirvara þannig að tími gefist til undirbúnings og allt það. Annars, eins og gengið hefur, bæði á þessu kjörtímabili og líka á síðasta kjörtímabili, þar sem þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar stóðst ekki að langmestu leyti, hleypir það dagskrá þingsins einfaldlega í ákveðinn glundroða. Það þýðir að við getum ekki skipulagt hvernig við högum málum, bæði hér í þingsal og í nefndum. Það hrúgast upp mál fyrir lok þings sem allir vita að er ekki hægt að klára, það er bara ekki séns. Það er einfaldlega ekki tími, raunverulegur físískur tími, til að fara (Forseti hringir.) yfir allar umsóknir og gera hlutina. Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar skiptir þannig máli og ég vil beina því til hæstv. forseta að ganga eftir því að hún standist.