störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í kosningabaráttunni í haust ræddi ég mikið þann vanda sem að Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi steðjar. Ég hitti bæði nemendur og starfsmenn. Ég hitti líka marga sem hagsmuna eiga að gæta í græna geiranum og fleiri sem að skólanum koma. Eftir þessi samtöl staðfestist sú sannfæring mín að í raun væri einungis ein leið fær til að leysa hnútinn og sú leið er að stofna sjálfstæðan garðyrkjuskóla að Reykjum í Ölfusi.
Sjálf sé ég það ekki ganga upp að flytja garðyrkjunámið í Fjölbrautaskóla Suðurlands, með fullri virðingu fyrir þeirri frábæru stofnun. Ástæðan er einfaldlega sú að slík ákvörðun jafngildir því að kveða upp úr með endalok Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum með alvarlegum áhrifum fyrir allt garðyrkjunám í landinu sem og atvinnugreinina í heild sinni. Ég sé sem sagt ekki fyrir mér aðra leið en að endurreisa sjálfstæðan garðyrkjuskóla á Reykjum þar sem verði sérhæft iðn- og starfsmenntanám í garðyrkju og tengdum greinum á framhaldsskólastigi, endurmenntun og námskeið fyrir fagfólk og almenning og rannsóknir og tilraunir í samstarfi við háskóla og stofnanir.
Ég vil með öðrum orðum að Reykir verði heimili starfsmenntunar í græna geiranum, öflugt mennta- og rannsóknarsetur ræktunar, loftslagsmála, umhverfismála, náttúruverndar, skógræktar, landnýtingar og nýsköpunar á mörgum sviðum. Við skulum ekki eyða tíma í að velta okkur upp úr þeirri staðreynd að sameining Garðyrkjuskóla ríkisins og Landbúnaðarháskólans mistókst á sínum tíma. Sameiningin var misráðin eins og að henni var staðið.
Í ljósi þessa er ég með í smíðum þingsályktunartillögu sem ég mun leggja fram á næstu dögum og vænti ég stuðnings þingmanna við að tryggja nám í garðyrkju á Íslandi til framtíðar.