152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Nú þegar hafa á annað hundrað flóttamenn frá Úkraínu óskað eftir hæli hérlendis frá því að innrásin hófst og fjölgar þeim með degi hverjum. Búist er við að tekið verði á móti allt að 2.000 manns frá Úkraínu næstu vikur og mánuði. Sumir munu dvelja hér tímabundið en aðrir munu setjast hér að til lengri tíma. Nú þegar hefur stórum hópi flóttamanna verið boðið húsnæði í Reykjavík af borgarbúum, einkaaðilum, fyrirtækjum sem hafa aukarými eða hafa yfir að ráða lausu húsnæði. Þak yfir höfuðið er frumskilyrði og liggur húsnæði ekki á lausu í þeim alvarlega húsnæðisskorti sem ríkir í Reykjavík. Flóttafólk frá Úkraínu þarfnast sárlega víðtækrar aðstoðar og ekki síst börnin sem upplifað hafa erfiða reynslu og eru mörg í miklu áfalli. Það skiptir máli að hægt sé að taka á móti stríðshrjáðum úkraínskum börnum með sómasamlegum hætti. Ríkisstjórnin þarf að útfæra tillögur um hvernig skuli styrkja þær stofnanir ríkisins sem munu bjóða flóttafólki, og þá sérstaklega börnum, fjölbreytta þjónustu og aðstoð. Ef horft er til Reykjavíkur, þegar kemur að grunnþjónustu við börn, er staðan ekki góð. Langir biðlistar eftir aðstoð af öllu tagi eru í Reykjavík. Nú bætist við stór hópur flóttamanna í mikilli þörf og þessu fólki má ekki bregðast. Á sama tíma er ekki hægt að ætlast til þess að þeim sem beðið hafa vikum saman og jafnvel mánuðum eftir nauðsynlegri þjónustu, börnum, öryrkjum, fátækum, heimilislausum og eldra fólki, verði ýtt til hliðar og látin bíða enn lengur. Ámóta ástand er hjá stofnunum ríkisins, svo sem BUGL og Þroska- og hegðunarstöð. Mörghundruð börn bíða eftir þjónustu hjá þessum stofnunum og fleirum sem sinna börnum í vanlíðan. Ríkið hefur undanfarna áratugi falið sveitarfélögunum fjölmörg verkefni á sviði félagsmála en ábyrgð þarf að fylgja fjármagni.