152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Okkur hefur verið tíðrætt um heilbrigðismálin. Hér kemur hver þingmaðurinn á fætur öðrum og við erum öll nánast að tala um sama málið. Það er vöntun á fjármagni í heilbrigðiskerfið. Við vorum hérna í gær með mjög fallega og, að heilbrigðisráðherra fannst, metnaðarfulla þingsályktunartillögu, en það fylgir henni ekkert fé.

Mig langar til að koma inn á mál sem snertir heilsugæsluna okkar. Ég hlustaði í fyrramorgun á viðtal á Bylgjunni þar sem eiginmaður var að segja frá samskiptum eiginkonu sinnar við heilsugæsluna. Hún var búin að vera með verki í baki og hún var búin að reyna allt sjálf, bæði heita og kalda bakstra til að reyna að minnka sjálf sína verki, sem ekki tókst. Þessi manneskja er 58 ára gömul og hefur aldrei haft heimilislækni, hún hefur verið frísk og hraust, og hún leitaði til heilsugæslunnar. Þar fékk hún að vita eftir skoðun að hún væri með vöðvabólgu og hún fékk íbúfen, fékk verkjalyf, og var send heim. Þetta gekk í þrígang, í fjórgang, fimmgang og það var ekki búið enn. Allir sögðu það sama og alltaf fór hún heim sárþjáð og alltaf versnaði hún og versnaði. Hún var komin með verk í brjósthol og í holhönd og henni var aldrei gert að fara í aðra rannsókn, bara send heim með lyf. Í sjötta skiptið fer hún og þá var hún alveg búin að fá nóg, sló í borðið og sagði: Þið verðið að gera eitthvað. Þá er hún spurð: (Forseti hringir.) Geturðu ímyndað þér hvað þetta er? (Forseti hringir.) Já, mér dettur í hug krabbamein. Svo sló hún í borðið og sagði: (Forseti hringir.) Ég fer ekki héðan út fyrr en ég fæ bót minna mála eða þið kannið hvað er að mér. Þá loksins, eftir nærri hálft ár, (Forseti hringir.) fær hún fyrstu myndatökuna, (Forseti hringir.) sárþjáð í nærri hálft ár. Þá kemur upp krabbamein og þetta var svokallað smáfrumukrabbamein (Forseti hringir.) sem þróast mjög hratt. Hún er dáin í dag, 58 ára gömul.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma í störfum þingsins sem eru tvær mínútur í hvert sinn.)