störf þingsins.
Virðulegi forseti. Víða er pottur brotinn á íslenskum fasteignamarkaði og sem varaþingmaður í stjórnarandstöðu hef ég hófstilltar væntingar um að geta lagfært allt sem hefur misfarist þar, afar hófstilltar væntingar. En ég hef þó lagt fram þingsályktunartillögu sem felur í sér ákveðnar réttarbætur fyrir hóp leigjenda. Og þar sem ég mun aðeins sitja hér út þessa viku og ólíklegt að ég geti fylgt henni eftir þá vil ég nýta þennan vettvang til að kynna hana fyrir þingheimi.
Staðan í dag er þannig að leiguverð er hátt og húsnæðisöryggi leigjenda er takmarkað. Margir leigjendur greiða mun hærri leigu en sem nemur afborgunum fasteignaláns fyrir sambærilegt húsnæði. Við vitum öll að það er hagstæðara á Íslandi að eiga en leigja. Fólk sem býr í eigin húsnæði eykur eign sína að öllu jöfnu mun meiri en fólk á leigumarkaði. Það er ekki að furða að rúmlega 90% leigjenda segist vilja kaupa sér fasteign.
Tillagan gengur út á það að leigjendur, sem geta sýnt fram á tryggar greiðslur samkvæmt þinglýstum leigusamningi 12 mánuði aftur í tímann eða lengur, standist greiðslumat upp að sama marki og þeir hafa verið að greiða. Að lánveitendum verði heimilað að líta til raunverulegrar greiðslugetu fólks en ekki aðeins neysluviðmiða sem byggja á öðrum mælikvarða en raunneyslu fjölskyldunnar sem um ræðir. Það er í rauninni alveg óskiljanlegt að fólk sem á fyrir útborgun og sýnir það mánuð eftir mánuð að það geti vel staðið undir greiðslum, standist ekki greiðslumat fyrir lægri fjárhæð en það greiðir nú þegar. Að fólki sé meinað að lækka greiðslubyrði sína með kaupum og sé þar af leiðandi haldið föstu á leigumarkaði gegn vilja sínum og gegn hagsmunum sínum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)