152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

starfsreglur fastanefnda.

[14:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég vil ræða fundarstjórn forseta í aðeins stærra samhengi, sem varðar starfsreglur fastanefnda. Þar kemur fundarstjórn almennt séð við sögu, sérstaklega fundarstjórn forseta, af því að starfsreglur fastanefnda eru samþykktar í forsætisnefnd. Nú er alveg augljóst að núverandi starfsreglur þingsins, þ.e. fastanefnda þingsins, voru ekki samþykktar samkvæmt forminu. Ég vil því biðla til ráðherra og formanna fastanefnda að fara varlega í að beita núverandi starfsreglum sem eru birtar á vef þingsins því að þær voru ekki samþykktar. Það er algjörlega skýrt, samkvæmt öllum þeim ströngu, tæknilegu kröfum sem við gerum til slíkrar ákvarðanatöku, að þar liggur hundurinn grafinn. Það eru nokkur efnisleg atriði sem eru öðruvísi í þeim starfsreglum sem eru á netinu, birtast sem starfsreglur fastanefnda, og þeim starfsreglum sem voru áður í gildi. Þegar upp kemur vafamál um það hvorum reglunum á að fylgja þá fylgjum við þeim gömlu.