152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

starfsreglur fastanefnda.

[14:13]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég vil byrja á að taka undir það sem var sagt hér um starfsreglurnar. Þetta hefur verið mér óljóst frá því að ég hóf störf hér á þinginu. Annað sem ég vildi koma hingað upp og vekja athygli forseta á er að ég sit frekar aftarlega í salnum og var að reyna að hlusta á það sem hv. þingmenn voru að segja og það gekk illa vegna hávaða hér frammi. Mér skilst að innan þinghelginnar skuli allir ljóta njóta griða og frelsis til að hlýða á það sem fram fer sem er erfitt í svo miklu skvaldri hér frammi.