152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

starfsreglur fastanefnda.

[14:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Forseti segir einmitt að ekki liggi fyrir sameiginleg túlkun á þessu atriði í forsætisnefnd. Það eru athugasemdirnar sem ég er að gera við þær starfsreglur sem eru í gangi eins og er. Enginn vafi er á því að forminu var ekki fylgt þegar starfsreglurnar voru samþykktar. Það er ekkert sem krefst neinna skoðanaskipta hvað það varðar. Það er ekkert flókið. En það er einmitt þess vegna sem starfsreglur eru mikilvægar. Þegar upp kemur ágreiningur er hægt að skoða hvernig á að haga málum, hvaða skref á að stíga þegar verið er að skrifa nefndarálit, hversu mikinn tíma minni hlutinn fær til að skila nefndaráliti. Það skiptir stundum máli þegar verið er að reyna að troða málum hratt í gegnum þingið, það skiptir miklu máli. Það skiptir gríðarlega miklu máli að ákvarðanir séu rétt teknar. (Forseti hringir.) Og það er það sem ég er að gera athugasemd við. Það er algerlega kýrskýrt að þessi ákvörðun var ekki rétt tekin. (Forseti hringir.) Um það er ekkert hægt að rífast og segja að einhverjir hafi aðrar skoðanir.