152. löggjafarþing — 54. fundur, 22. mars 2022.
starfsreglur fastanefnda.
Forseti verður þó að geta þess að enginn sem sat forsætisnefndarfund í fyrrasumar, í ágúst í fyrra, þar sem þessi ákvörðun var tekin, er sömu skoðunar og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson hvað þetta varðar. En málið er til umfjöllunar í forsætisnefnd og verður þar leitt til lykta, m.a. á grundvelli þeirra upplýsinga sem aflað hefur verið og aflað verður um það sem gerðist á þessum fundi forsætisnefndar á síðasta kjörtímabili.