152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:16]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir tækifærið til að fá að eiga orðastað við hæstv. utanríkisráðherra, sem er líka þróunarsamvinnuráðherra, um áhrif Covid-19 á þróunarsamvinnu. Vestræn ríki eins og Ísland gripu til umfangsmikilla takmarkana á borgara sína til að sporna við útbreiðslu á Covid á meðan heimsfaraldurinn geisaði hvað mest í okkar heimshluta. Þegar bóluefni litu dagsins ljós kepptumst við við að bólusetja allt og alla, fyrst með einum, svo tveimur og loks þremur skömmtum. Nokkur vestræn ríki hafa jafnvel hafið fjórðu bólusetningarherferðina. Á sama tíma hefur heilbrigðisstarfsfólk í Afríku ekki einu sinni verið fullbólusett og einungis um 19% af íbúum Afríku hafa fengið eina Covid-19 sprautu.

Á meðan við öndum léttar, komin yfir erfiðasta hjallann og efnahagsbatinn meiri og skjótari en við þorðum að vona, er staðan allt önnur í þróunarríkjunum. Þar eru hörmungarnar rétt að byrja og þriðji eða fjórði Covid-bóluefnaskammturinn er ekki helsta áhyggjuefni fólks. Á meðan Vesturlönd hafa ráðist í umfangsmiklar björgunaraðgerðir fyrir fólk og fyrirtæki eru engir innviðir til staðar í þróunarríkjum til að koma þannig til móts við borgarana.

Þar sem hlutfall þróunarsamvinnu er iðulega skoðað út frá vergri landsframleiðslu eru áhyggjur af fjárframlögum Vesturlanda til þróunarsamvinnu réttmætar. Í samstarfslöndum okkar í þróunarsamvinnu eru lífsskilyrði og lífsbjörg fólks í miklum mæli háð sjálfsþurftarbúskap. Þar þurftu íbúar m.a. að laga sig að útgöngubanni og ýmiss konar takmörkunum og lokunum. Ég gat ekki annað en hugsað til allra þeirra barnmörgu fjölskyldna sem ég hitti í heimsóknum mínum til Afríku, fjölskyldna sem brauðfæða börnin sín með heimaræktun og smáveiðum sem þær selja á mörkuðum sem voru skyndilega allir lokaðir. Hvernig lifðu þessar fjölskyldur af heimsfaraldurinn eða gerðu þær það kannski ekki? Í þessum löndum er veruleiki fjölmargra barna sá að eina heita máltíð dagsins er skólamáltíðin. Í samstarfslandi okkar Úganda var skólum til að mynda lokað í tvö ár vegna Covid. Börn sem máttu síst við því, börn fátækra foreldra með lágt menntunarstig sem búa í dreifbýli, verða fyrir mestum áhrifum af slíkum lokunum, en í fátækustu ríkjum heims er eiginlega ekki hægt að flokka aðstæður barna nema í illa sett og verr sett, og skólalokanir þýða það að fjöldi barna snýr aldrei aftur í skóla.

Talandi um bólusetningar: Í upphafi faraldursins vöruðu sérfræðingar við þeirri hættu að stuðningur vegna annarra lífsnauðsynlegra bólusetninga barna myndi þverra vegna ofuráherslu á Covid-bólusetningar. Staðan í þróunarríkjum er nefnilega sú að í mörgum þeirra eru lífshættulegir smitsjúkdómar landlægir þótt hægt sé að bólusetja gegn þeim. Það kom því ekki á óvart þegar fregnir bárust af því á dögunum að mænusótt sem hefur ekki greinst á meginlandi Afríku í nokkur ár blossaði upp í samstarfslandi okkar Malaví. Við vitum líka að Covid hefur haft þau áhrif á heimsbyggðina að almennar bólusetningar hafa dregist saman.

Efnahagshorfur fátækustu ríkja heims eru slæmar og hungur fer vaxandi. Fjöldi vannærðra í heiminum nálgast 900 milljónir og hungursneyð vofir yfir milljónum manna. Covid-19 aðgerðir hafa nefnilega haft mikil áhrif á fæðuöryggi. Vegna heimsfaraldursins jókst sárafátækt núna í fyrsta skipti í meira en 20 ár og meira en 100 milljónir manna bættust við þá sem þegar bjuggu við fátækt. Í þróunarríkjum hefur líka orðið hryllileg þróun í mannréttindamálum. Við fylgjumst hér skelfingu lostin með tölum um brot gegn börnum og um heimilisofbeldi sem hafa rokið upp í heimsfaraldrinum. Hér eiga þessir hópar sér samt málsvara. Í samstarfslöndum okkar hefur orðið mikið bakslag, m.a. í jafnréttismálum, og var þar ekki úr háum söðli að falla. Barnahjónaböndum og ótímabærum þungunum táningsstúlkna hefur t.d. fjölgað gríðarlega.

Virðulegi forseti. Nú þegar öldurnar er að lægja hjá okkur er margt sem við verðum að horfast í augu við, ekki bara hérna hjá okkur heldur líka í þeim löndum heims sem treysta á okkur, í samstarfslöndum okkar í þróunarsamvinnu. Ég þykist vita að hæstv. utanríkisráðherra sé meðvitaðri en margir um eftirleikinn, um uppgjörið sem þarf að eiga sér stað. Það verður fróðlegt að heyra hvers hún hefur orðið vísari í þessum gríðarlega mikilvæga málaflokki.