þróunarsamvinna og Covid-19.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að kalla til sérstakrar umræðu um þróunarsamvinnu og Covid-19. Þetta er ein hlið faraldursins, risastór, sem við höfum bara mjög lítið rætt. Viðbrögð heimsins við heimsfaraldrinum verða eflaust rannsökuð á næstu árum og áratugum. Og hvað varðar fátækustu svæði heims þá blasir við að neyðin hefur vaxið gríðarlega og í einhverjum skilningi kann það að verða stærsta gjaldið sem heimsbyggðin greiðir fyrir faraldurinn. Þau lönd sem höfðu efni á því gátu skrúfað niður gangverk efnahagslífsins til að draga úr hættu á smitum, en afleiðinganna gætir síðan um heim allan og eru því miður mest afgerandi hjá þeim löndum sem máttu síst við slíkri truflun.
Þegar á heildina er litið er ljóst að heimsfaraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á þróunarlönd og alþjóðlega þróunarsamvinnu. Í fyrstu var umfjöllun um bein áhrif áberandi þar sem athygli heimsbyggðarinnar beindist einna helst að smittölum og hraðri útbreiðslu. Fljótlega varð þó ljóst að óbein áhrif, hin efnahagslegu og félagslegu, yrðu þróunarríkjum miklum mun þyngri byrði að bera, bæði til skamms tíma og til lengri tíma, en afleiðingarnar af Covid-19 veikindunum. Þessi óbeinu áhrif eru m.a. vegna viðbragða á Vesturlöndum við faraldrinum. Þannig hefur Alþjóðabankinn sagt að árangur síðustu þriggja ára fyrir heimsfaraldur í baráttunni gegn fátækt hafi í raun og veru þurrkast út vegna áhrifa heimsfaraldursins. Áætlar bankinn að á fyrsta ári hans hafi 97 milljónir bæst í hóp þeirra sem lifa undir fátæktarmörkum. Við blasir að þetta er gríðarlega alvarlegt og ákaflega sorglegt bakslag.
Þá segir UNICEF að áhrifin af Covid-19 faraldrinum hafi verið mesta ógnin við velferð barna í 75 ára sögu stofnunarinnar og að faraldurinn hafi ýtt 150 milljónum barna í margþætta fátækt. Þá fjölgaði börnum sem ekki fengu hefðbundnar barnabólusetningar árið 2020 um 3,7 milljónir. Þetta eru vitaskuld ekki afleiðingar sem rekja má til veikinda vegna faraldursins heldur til aðgerða stjórnvalda víða um heim til þess að koma í veg fyrir smit. Þetta er í mínum huga ekki bara eitthvað sem er umhugsunarvert heldur mjög sorglegt og nokkuð sem við þurfum að draga lærdóm af.
Í samstarfsríkjum okkar Úganda og Malaví gætir áhrifa faraldursins ekki síst á sviði jafnréttismála, eins og hv. þingmaður kom inn á. Tíðni barnahjónabanda og þungana unglingsstúlkna hefur aukist, sem og kynbundið ofbeldi. Alþjóðabankinn hefur til að mynda talað um 25% aukningu í heimilisofbeldi í Úganda og í samstarfshéraði Íslands í Malaví voru tæplega 6.000 barnahjónabönd skráð á því tímabili sem skólar voru lokaðir. Í þróunarsamvinnu Íslands var strax í upphafi faraldurs lögð áhersla á að bregðast við ástandinu hratt og vel og var sérstökum fjármunum fljótt beint til Covid-19 tengdra verkefna, bæði í fjölþjóðlegu þróunar- og mannúðarsamstarfi sem og í tvíhliða samstarfslöndum okkar.
Vissulega hefur heimsfaraldurinn aukið áskoranir í framkvæmd þróunarsamstarfs hjá okkur en þrátt fyrir það hafa verkefni í Malaví og Úganda gengið að mestu samkvæmt áætlun. Í Úganda voru viðbrögð stjórnvalda allt frá upphafi mjög afgerandi og þjóðfélaginu var þar nánast lokað um tíma. Skólar opnuðu loksins í janúar síðastliðinn eftir tæpa tveggja ára lokun. Afleiðingar þessara lokana eru mjög miklar og alvarlegar og er vitað að umtalsverður hluti þeirra barna sem haldið var frá námi vegna faraldursins mun ekki snúa þangað aftur.
Eitt af því sem gert var í Úganda í tengslum við opnun skóla á ný var að koma með bætta hreinlætisaðstöðu. Ísland tók þátt í því í 600 skólum. Þá styður Ísland við skólamáltíðaverkefni í Úganda en þær skipta miklu við að koma nemendum aftur í skólann, sem þó hafa ekki allir skilað sér til baka. Í Malaví voru skólar lokaðir í níu mánuði. Malavísk börn fengu, m.a. með stuðningi Íslands, bætta skólamáltíð meðan á skólalokun stóð ásamt mánaðarlegum fjárstyrk til foreldra. Þá voru sett upp vatnskerfi með rennandi vatni og handþvottastöðvum fyrir 12.000 nemendur og kennarar í 120 skólum fengu þjálfun í Covid-forvörnum.
Faraldurinn setti strik í reikninginn varðandi þróun frekara samstarfs í Síerra Leóne, sem þó hefur komist á fullt skrið á síðustu mánuðum. Við höfum stutt við vatns- og hreinlætismál til varnar faraldrinum, auk stuðnings við fæðingar- og kynheilbrigðisþjónustu og aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi. Frá upphafi faraldursins hefur utanríkisráðuneytið starfað náið með frjálsum félagasamtökum sem framkvæma verkefni á vettvangi og hefur framgangur þeirra verið með ágætum þrátt fyrir áskoranir. En því miður er útlitið ekki gott. Fátækt og ójöfnuður hefur aukist. Skuldavandi þróunarríkja hefur vaxið, þörf fyrir mannúðaraðstoð hefur vaxið mjög og hækkandi matar- og orkuverð vegna stríðsins í Úkraínu mun síðan auka neyð víðs vegar um heim. Þannig að neyðin er mikil og það er ljóst að þörfin fyrir stuðning hins ríkari hluta heims mun vaxa. Í þeim verkefnum er mikilvægt að Ísland axli ábyrgð og það er mikilvægt fyrir okkur að huga að þessu og draga lærdóm af þeim afleiðingum sem þetta allt saman hefur haft, því að áskoranir verða fleiri í framtíðinni og það er ýmislegt sem við hefðum kannski gert öðruvísi ef við hefðum séð allar þær afleiðingar.