þróunarsamvinna og Covid-19.
Herra forseti. Hér veltir hv. þingmaður Diljá Mist Einarsdóttir upp gríðarlega mikilvægum málum og varpar ljósi á það hvernig ríkari þjóðirnar hafa fyrst og fremst hugsað um sjálfar sig, lokað augunum fyrir fátækt, ójöfnuði og aukinni neyð og auk þess ýtt undir ófrið í heiminum í kjölfarið. Hér viðurkennir líka hæstv. ráðherra að neyðin hafi aukist og það þurfi að bæta úr. Í því ljósi þurfum við og hljótum að ræða þátttöku Íslands, 11. ríkasta lands veraldar, í þróunarsamvinnu því að þótt krónutalan hækki ár eftir ár eru þau 0,35% sem við greiðum af vergri þjóðarframleiðslu skammarlega lág og raunar helmingi lægri en þau 0,7% markmið Sameinuðu þjóðanna sem við Íslendingar höfum engu að síður lýst stuðningi okkar við. Hæstv. utanríkisráðherra leyfir sér svo að koma upp og segja að allt hafi gengið samkvæmt áætlun og hnýtir svo við að það þurfi að gera betur. Það þýðir þá væntanlega að áætlunin er of metnaðarlaus. Við hljótum einfaldlega að gera þá kröfu, rétt eins og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom inn á, að við öxlum meiri ábyrgð í þessum málaflokki. Við höfum enga afsökun hér inni fyrir því að sameinast ekki um tímasett markmið um það hvenær við ætlum að komast upp í þessi 0,7% vegna þess að við erum ekki einungis að láta það viðgangast að fátækt, neyð og hörmungar sem því fylgja fái að viðgangast heldur erum við — og hugsum um nýliðna atburði austur í Úkraínu — að ýta undir mögulegan ófrið alls staðar í heiminum.