þróunarsamvinna og Covid-19.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir umræðuna og sömuleiðis þakka ég hæstv. utanríkisráðherra fyrir að vera hér með okkur. Í þingsályktuninni sem samþykkt var í maí 2019, um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2019–2023, kemur réttilega fram, eins og hv. þm. Logi Einarsson kom inn á, hver markmið okkar skuli vera og að íslensk stjórnvöld taki undir það að iðnríki skuli veita allt að 0,7% af vergum þjóðartekjum í þessi mál. Það verður að fylgja sögunni að Íslendingar hafa bætt við útgjöldin, sem betur fer, en betur má ef duga skal, ég get tekið undir það með hv. þm. Loga Einarssyni. Við stefnum í 9 milljarða á árinu 2022 til þessa málaflokks. En það er nú einu sinni þannig að því miður hefur heimsfaraldurinn leikið þessi ríki verulega grátt. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, tók til máls um daginn og varaði við því að staðan myndi versna enn meira í ljósi stríðsins í Úkraínu. Þegar matvælaframleiðsla fer að minnka með stríðinu bitnar það því miður á þeim sem síst skyldi í þessu tilliti, þ.e. þróunarríkjunum, þannig að betur má ef duga skal. Við höfum staðið okkur alveg ágætlega en við verðum að gera enn betur.