152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:31]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að koma með þetta mál. Helstu áherslur og spurningar eru mjög skýrar og mikilvægar og eiginlega átti ég von á að við fengjum svör við þeim í dag, en það er kannski ekki alveg svo einfalt.

Covid-19 sýndi hversu mikill aðstöðumunur er á milli landa sannarlega. Lönd í hinum vestræna heimi náðu að bólusetja fólk tvívegis áður en mörg lönd fengu jafnvel fyrsta skammt bóluefnis. Fögur fyrirheit vestrænna ríkja um bóluefnasamstarf komu ekki til framkvæmda fyrr en seint og síðar meir. Færa má rök fyrir því að áhættan af faraldrinum hafi aukist til muna vegna þess hversu mikið ójafnræði var á dreifingu bóluefna. Eins og staðan er í dag veltir maður líka fyrir sér, á meðan þessi ójöfnuður er gríðarlegur og veiran er að krauma og malla í þróunarlöndum, hvort einn góðan veðurdag komi ekki bara nýtt afbrigði út úr því öllu saman. Það er margbúið að segja að það verði ekki fyrr en búið er að ná tökum á þessu í öllum heiminum sem við stígum mögulega fyrir alvöru út úr þessum vágesti.

Við í Flokki fólksins erum sífellt að hugsa um viðkvæma hópa; öryrkja, fatlað fólk, börnin, hvort sem það er hérlendis eða úti í heimi. Mér sem fyrrverandi formanni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi til sex ára verður hugsað til barnanna og hinna óbeinu áhrifa af því að þau foreldralaus, vegna þess að foreldrarnir hafa látist úr Covid, séu á vergangi og við vitum öll hvernig það getur tengst mansali. Þannig að staðan er hörmuleg og staðan fyrir Covid í mörgum þessara þróunarlanda var hræðileg fyrir vágestinn. Við erum því í enn þá verri málum og hér þurfum við vissulega að stíga inn með einum eða öðrum hætti og hjálpast öll að til þess að við getum einn góðan veðurdag sagt skilið við þennan vágest.