þróunarsamvinna og Covid-19.
Herra forseti. Yfir heimsbyggðina hefur nú í tvö ár gengið versti heimsfaraldur sem fleiri kynslóðir hafa þurft að upplifa og takast á við. Við höfum tekist á við þessa ógn hér á landi að mörgu leyti með farsælum hætti samanborið við aðrar þjóðir. Samt hafa margir orðið að sjá á eftir ástvinum og margir orðið fyrir heilsubresti og því miður er von á fleiri slíkum áföllum. Því þurfum við að sýna áfram aðgát, ekki síst af virðingu fyrir lífi og mannréttindum þess fólks sem veikt er fyrir og ástvinum þeirra.
Það er líka ljóst að flestar vestrænar þjóðir, ríkari þjóðirnar, hafa þrátt fyrir alvarleg áföll og viðvarandi erfiðleika átt auðveldari leið í gegnum heimsfaraldurinn en fátækustu þjóðirnar. Margs konar annað álag hvílir á íbúum þessara landa vegna sjúkdóma, veikra innviða og skorts á fullnægjandi matvælaöryggi. Á þetta ekki síst við um mörg ríki Afríku, ríki sem eru háð þróunaraðstoð þurfa sárlega á óskertri og meiri aðstoð að halda. Covid-faraldurinn hefur valdið ómældum viðbótarþjáningum og erfiðleikum fyrir íbúa þróunarlandanna. Að þessu þurfum við Íslendingar sérstaklega að hyggja í yfirferð okkar á aðstoð og á hverju sé mest þörf, hvar við getum komið að sem mestu liði. Þurfum við að breyta áherslum okkar, alla vega tímabundið?
Í þeim löndum sem við höfum einbeitt okkur hvað mest að, í okkar þróunaraðstoðarlöndum, þar sem við getum haft hvað mest fram að færa í ljósi okkar styrkleika eða í samstarfi við aðra, er staðan augljóslega erfið. Í Úganda eru aðeins 30% þjóðarinnar bólusett fyrir Covid. Í Síerra Leóne, þar sem enn frekara starf er í undirbúningi, er hlutfallið komið í 21% en í Malaví er það aðeins 8%. Hætta er á að samfélagið í þessum löndum eigi eftir að verða lengur í heljargreipum heimsfaraldurs en margar þær þjóðir sem nú vonast til að sjá fljótlega fyrir endann á því og að full endurheimt taki ekki langan tíma. Þessa stöðu þurfum við að greina og bregðast við.