152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:35]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Árið 2015 komu þjóðarleiðtogar saman og settu sér 17 heimsmarkmið til áranna 2030, markmið sem gerðu ekki ráð fyrir því að við myndum fá heimsfaraldur, markmið sem gerðu ekki ráð fyrir því að 100 milljónir manna myndu fara aftur í sárafátækt, markmið sem gerðu ekki ráð fyrir því að börn í 194 löndum misstu úr skóla, sum hver í allt að tvö ár.

Skuldahlutfall í þróunarlöndum undanfarin tvö ár hefur aukist hratt þar sem stjórnvöld í þessum löndum eru að sinna lífsbjargandi útgjöldum og þurfa oft að velja á milli þess að bjarga fólki eða mennta fólk eða gefa því að borða eða hugsa um loftslagsaðgerðir. Já, heimsfaraldurinn hefur leitt til aukinnar fátæktar og ójöfnuðar og dregið úr framþróun á ýmsum sviðum, oft um ár ef ekki áratugi. Eins og nefnt hefur verið hér var jafnvel það fjármagn sem skilgreint var til heilbrigðismála nýtt í viðbragðið við Covid og þar af leiðandi má búast við bakslagi í öðrum sjúkdómum og í heilsu fólks víða um heim.

Þó svo að lönd hafi aukið fjármagn samtals til þróunarmála þá hafa mörg hver skorið niður langtímaverkefni á kostnað Covid-19 aðgerða. Það er mikilvægt að ekki sé látið undan skammtímaþrýstingi um niðurskurð sem mun koma á þessu ári og næstu vegna þess að uppbyggingin eftir Covid og viðbragðið er bara rétt að byrja í þróunarlöndunum.