þróunarsamvinna og Covid-19.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að setja málið á dagskrá. Við erum vonandi öll sammála um að bólusetningar fullorðinna og barna hafi verið mikilvægur liður í að stuðla að eðlilegu lífi eftir Covid-19 og hafi dregið úr alvarlegum veikindum og dauðsföllum. Ísland hefur nú þegar tekið virkan þátt í alþjóðlegum aðgerðum til stuðnings baráttu þróunarríkja gegn heimsfaraldrinum. Þær fréttir bárust fyrir stuttu að utanríkisráðuneytið myndi verja allt að 250 millj. kr. til að styðja við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, eða UNICEF, til að hraða dreifingu og aðgengi að Covid-19 bóluefnum í þróunarríkjunum. Því vil ég fagna.
Ljóst er að Covid-19 mun hafa margvíslegar afleiðingar í þróunarríkjunum. Þær afleiðingar munu reynast sérstaklega erfiðar í ljósi stöðu ríkjanna sem þróunarríkja. Þær verða efnislegar, félagslegar og menningarlegar og munu líklega hafa alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu og allan félagslegan aðbúnað barna og fjölskyldna í þessum ríkjum. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum er búist við að hlutfall ólæsra tíu ára barna aukist úr 53% í 70% ef ekki verður gripið til aðgerða. Það er mikið áhyggjuefni í ljósi þess að áður en heimsfaraldurinn hófst voru 53% tíu ára barna í lág- og meðaltekjuríkjum ekki nægjanlega vel læs og uppfylltu ekki lágmarkskröfur í lestri og reikningi.
Það er mjög mikilvægt að Ísland taki þátt í þróunarsamvinnu af fullu afli og taki þátt í að kosta bóluefni til þróunarríkjanna. Heimsbyggðin öll þarf að taka á þessu saman og nú þegar vestræn ríki hafa bólusett þjóðir sínar vel verðum við hér á litla Íslandi að aðstoða þróunarríkin á fjölbreyttan hátt. Það þarf að vera í formi fjárframlaga en einnig með því að koma þekkingu okkar á framfæri, t.d. með því að íslenskir sérfræðingar komi með beinum hætti til aðstoðar.