152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:42]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Ég vil, líkt og aðrir hér, þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu í dag. Heimsfaraldrinum er ekki lokið og við ættum kannski að nota þetta góða tækifæri til að líta í eigin barm, yfir síðustu tvö ár. Það hefur legið fyrir frá fyrstu stundu, frá því að fyrsta bóluefnið var þróað gegn Covid-19, að ekkert okkar gæti verið fullvarið fyrir veirunni fyrr en við værum það öll, ekki bara við öll á Íslandi heldur mannkynið allt. Það stoppaði okkur hins vegar ekki hér á Íslandi í því að taka þátt í bóluefnakapphlaupinu með öðrum ríkum löndum. Fyrir því voru bæði skiljanlegar ástæður og kannski eðlilegar. En þegar við lítum til baka vitum við líka að við vorum mjög nærsýn í þessu. Við getum bara huggað okkur við að við vorum ekki ein sek um það.

Oxfam hefur nýlega bent á að afleiðingar þessa viðbragðs ríku landanna sé eitthvað sem kalla megi nýja tegund af nýlendustefnu. Á meðan bólusetningar á Vesturlöndunum dekka u.þ.b. 75% íbúa, þá dekka þær um 11% íbúa í heilli heimsálfu sem heitir Afríka. Við berum nefnilega ekki öll sömu byrðarnar í þessum faraldri og við verðum að horfast í augu við að til þess að COVAX-samstarfið skili raunverulegum árangri þarf að veita miklu meira fé til þess. Mig langar að nota tækifærið og spyrja hæstv. utanríkisráðherra hver sé heildarupphæð framlaga Íslands til COVAX-samstarfsins. En gleymum því ekki að þegar á allt reynir þá er mikilvægasta þróunarsamvinnan og þróunaraðgerðin að stuðla að jöfnuði og kvenfrelsi, börnum, körlum og konum til handa. Baráttan gegn misskiptingu í heiminum er í rauninni undir hér eins og í öllu sem máli skiptir.