þróunarsamvinna og Covid-19.
Virðulegi forseti. Hér fer fram mikilvæg umræða um bein og óbein áhrif Covid á þróunarsamvinnu og vil ég þakka fyrir þá umræðu. Í tvö ár höfum við upplifað tíma sem ekkert okkar bjóst við þrátt fyrir að hafa þá vitneskju úr lífvísindunum að við gætum alltaf átt von á heimsfaraldri. Á þessum einstöku tímum höfum við líka upplifað samtaka- og samvinnumátt alþjóðasamfélagsins, alþjóðavísindasamfélagsins og stjórnmálanna, þegar sett voru skýr markmið um samvinnu við rannsóknir og þróun bóluefna. Það tókst, en alþjóðasamvinnunni má ekki ljúka þar. Hún verður að ná alla leið til dreifingar bóluefnisins á jafnan og sanngjarnan hátt til allra heimshluta, bæði vegna beinna mannúðar- og jafnréttissjónarmiða en líka vegna líffræði veirunnar. Stökkbreytingar veirunnar eru óútreiknanlegar og þess vegna verðum við að draga úr tækifærum hennar til að fjölga sér og fækka þar með möguleikunum til stökkbreytinga. Við erum ekki varin fyrr en öll heimsbyggðin er varin. Það er bara þannig, eins og hér hefur komið fram.
Við höfum líka heyrt hér í umræðunni af ótrúlegu ójafnræði milli heimshluta. Virk þátttaka Íslands í alþjóðlegum aðgerðum er þess vegna mikilvæg, eins og stuðningur til COVAX-bóluefnasamstarfsins og stuðningur við starfsemi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna við að tryggja Covid-bólusetningar í þróunarríkjum. Barnahjálpin gegnir mikilvægu hlutverki og býr að dýrmætri reynslu um framkvæmd bólusetninga í þróunarlöndum sem hefur nýst til að koma bóluefnunum á leiðarenda, við flutning, tæknilega aðstoð, stuðning við heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir ásamt almenningsfræðslu.