152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:47]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda þessa máls. Það er um gríðarlega mikilvægt mál að ræða sem er áhrif Covid á alþjóðaþróunarsamvinnu Íslands. Ég tel að alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands, sem á sér langa sögu og er ein af meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu, eigi að vera sem mest óbreytt. Áhrif Covid eru vonandi sem allra minnst á þá samvinnu. Þingsályktun var samþykkt 2019 og vonandi hefur utanríkisráðuneytinu tekist að framfylgja þeirri stefnu þrátt fyrir Covid.

Við erum eitt ríkasta samfélag heims og það er mjög mikilvægt að fjárframlög okkar til þróunarsamvinnu séu í samræmi við ríkidæmi íslensks samfélag. Ég vil sérstaklega taka undir síðasta áherslupunktinn sem er eftirfarandi hjá málshefjanda: Hefur verið gerð úttekt eða greining á því hvort afturför hafi orðið í þróunarsamvinnustarfi Íslands vegna Covid-19? Ef ekki, hyggst ráðherra ráðast í slíka greiningu og bregðast við gerist þess þörf? Hér er um grundvallaratriði að ræða.

Ég tel reyndar að Alþingi Íslendinga ætti að óska eftir því að gerð verði rannsókn á áhrifum Covid, bæði áhrifum stjórnvalda og áhrifum Covid, á þróunarsamvinnu sem og áhrif á íslenskt samfélag. Það er mjög mikilvægt að við skilgreinum alla aðstoð okkar við þróunarlönd varðandi Covid sérstaklega, aðskilið frá núverandi stefnu. Það er algjört grundvallaratriði og það er gríðarlega mikilvægt að við styðjum þróunarríkin í bóluefnakaupum og bólusetningum. Árangurinn hefur sýnt að þetta skiptir gríðarlega miklu máli í baráttunni við þennan heimsfaraldur sem við erum nú að komast út úr.