þróunarsamvinna og Covid-19.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér áföll í þróunarlöndum vegna heimsfaraldurs og stöðuna þeirra vegna. Samstarfslönd okkar, þar sem Ísland hefur veitt og vill veita aðstoð, kalla á skjót viðbrögð og greiningu um hvað við getum gert jafnvel enn betur til að mæta viðbótarneyð. Til viðbótar við hörmungar heimsfaraldurs bætist yfirvofandi matvælaskortur og enn meiri dýrtíð vegna stríðsátaka og innrásar í Úkraínu. Mörg þróunarlönd eru háð matvælasendingum og kaupum frá nú stríðshrjáðum svæðum. Þá er viðbúið að mörg vestræn ríki, þar með talið þau sem best hafa staðið sig í þróunaraðstoð, veiti aukna fjármuni í annað sem þau telja brýnt á erfiðum tímum í Evrópu. Það er mikilvægt að það gerist ekki á kostnað þróunaraðstoðar á tímum þegar fólkið sem byggir þessi lönd og þarf svo sárlega þarf á aðstoð að halda upplifir viðkvæmari tíma fyrir afkomu sína, framtíð sína, en verið hefur lengi. Ísland þarf að skerpa á þeirri aðstoð sem við höfum veitt vegna skelfilegra áhrifa faraldursins á þau lönd sem við erum að aðstoða. Við getum og eigum að bæta enn frekar í þá aðstoð sem við veitum með enn frekari fjárveitingum sem varið verður þar sem þörfin er mest og með krafti til að mæta viðbótarneyð sem gæti jafnvel átt eftir að versna enn frekar á næstunni.