152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:51]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka málshefjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir þessa mikilvægu umræðu, umræðu þar sem ég veit að við erum mjög sammála um flest atriði. Mig langar að tækla nokkur atriði hérna í seinni ræðunni. Í fyrsta lagi er oft sagt að Afríka sé ekki tilbúin til að taka við aðstoð þegar kemur að hlutum eins og Covid. Þá langar mig bara að benda ykkur á land sem ég bjó í í tvö ár sem heitir Rúanda þar sem yfir 80% af íbúunum eru nú þegar búin að fá tvær bólusetningar, þar sem í dag eru færri Covid-smit á dag en hér á Íslandi. Af hverju? Jú, af því að þeir voru búnir að leggja mikla vinnu í uppbyggingu á heilbrigðiskerfinu undanfarin tíu ár og voru þess vegna tilbúnir að takast á við þetta. Þegar þeir fengu þann stuðning sem þeir þurftu þá gátu þeir tekist á við þessa hluti. Þannig að það er ekki hægt að segja bara: Afríka er ekki alltaf tilbúin. Það er hægt að gera þetta rétt ef við leggjum í þessa langtímauppbyggingu.

Það er líka oft talað um hvað við verjum miklum peningum í aðstoð við útlönd. Mig langar að setja fram smásamanburð. Í svörum sem við fengum hér á Alþingi í dag kom fram að 11,4 milljörðum hefði verið eytt í Covid-próf á Íslandi síðastliðin tvö ár. Setjum þetta í samhengi við það að þróunarsamvinnan öll, ekki bara hvað við gerðum fyrir Covid heldur öll þróunarsamvinnan, verður alls 10,2 milljarðar á þessu ári. Þau kerfi sem við búum við í tengslum við þróunaraðstoð og neyðaraðstoð eru ekki byggð til að takast á við svona stóra atburði. Nú erum við að fara að takast á við enn eina krísuna. Pössum að sækja aukið fjármagn í hana svo við tökum það ekki frá núverandi þróunarstarfi.