þróunarsamvinna og Covid-19.
Herra forseti. Það á að vera metnaður hvers samfélags sem stendur vel að styðja við þau lönd og heimshluta sem höllum fæti standa. Ástæður fátæktar geta verið af ýmsum toga, svo sem vegna stríðsátaka og hörmulegra afleiðingar þeirra, eins og við verðum illþyrmilega vör við þessa dagana. Þá hafa margir siðlausir stjórnmálamenn náð að sölsa til sín þjóðarauðnum og lifa í vellystingum á meðan almenningur er sveltur. Þurrkar og aðrar náttúrulegar hörmungar eiga einnig sinn þátt í því að erfitt er að nýta land til ræktunar. Lágt menntunarstig og lítil tæknikunnátta ræður einnig miklu. Ísland hefur að mörgu leyti staðið sig bærilega á mörgum sviðum. Má þar nefna ýmiss konar aðstoð sem Ísland hefur veitt á tæknisviði, ásamt stuðningi við stofnanir sem sinna þessum málaflokki á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Þá hefur Ísland gert þróunarsamninga við nokkur ríki um að bæta stöðu fátæks fólks og stuðla að velferð á grundvelli mannréttinda og sjálfbærrar þróunar, eins og það er nefnt. Allt er þetta af hinu góða, en þegar skoðað er framlag Íslands til þróunaraðstoðar sem hlutfall af vergri landsframleiðslu kemur í ljós að Íslendingar eru eftirbátar annarra þjóða, með rúmlega 0,3% framlag. Norðmenn, Svíar og Danir verja rúmlega 1% í þennan sama málaflokk, Finnar rúmlega hálfu prósenti og Þjóðverjar u.þ.b. 0,7%. Íslendingar eru rík þjóð og það er alger óhæfa að við séum einhverjir eftirbátar annarra þjóða þegar kemur að framlagi til þróunaraðstoðar. Eitt er það sem vekur athygli þegar framlög til þróunaraðstoðar eru metin, þ.e. að heimilt er að telja framlög til móttöku flóttamanna sem þróunaraðstoð, og ekki bara móttöku heldur líka brottvikningu. Það er í mínum huga sérkennilegt að það teljist til þróunaraðstoðar að reka fólk úr landi.