152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

þróunarsamvinna og Covid-19.

[14:56]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka öllum þeim sem tekið hafa þátt í umræðunni, bæði hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum. Mér þótti jákvætt í þessari þungu umræðu að hlusta á yfirferð hæstv. ráðherra sem hefur skilning á málaflokknum og þykir staðan vekja upp spurningar. Ég er sammála því. Þessar tölur sem hún nefnir eru auðvitað stjarnfræðilegar og mjög óraunverulegar; 50 milljónir, 100 milljónir, aukin fátækt, ójöfnuður, hungur, þörf fyrir mannúðaraðstoð. Ég tek undir orð hv. þm. Loga Einarssonar því að þessi hræðilega staða afhjúpar það auðvitað að í heimsfaraldrinum hugsuðum við fyrst og fremst um okkur sjálf. En ég saknaði þess hins vegar að heyra ekki meira af þessum sjónarmiðum síðastliðin tvö ár.

Virðulegi forseti. Hörmungarnar vegna Covid eru rétt að byrja í þróunarríkjunum og þau munu verða verst úti vegna faraldursins, eins og hæstv. ráðherra fór yfir, ekki vegna þess að faraldurinn herji svo illa á þessi ríki heldur vegna óbeinna áhrifa af mótvægisaðgerðum, bæði okkar eigin og í þessum ríkjum. Covid hefur aukið kvíða og þunglyndi heimsbyggðarinnar um tugi prósenta en í þeim 43 löndum heims þar sem hungursneyð er yfirvofandi er kvíðinn örugglega af öðrum toga en hjá okkur. Mikið bakslag hefur orðið á sviði þróunarsamvinnu í kjölfar heimsfaraldurs og sums staðar hefur árangur af henni farið aftur um áratugi. Það þýðir samt ekki að gefast upp. Við verðum að láta þetta verða okkur hvatning til að leggja mikla áherslu á þróunarsamvinnu okkar og árangurinn af henni. Ísland er þrátt fyrir smæð mikilvægur þátttakandi í þróunarsamvinnu. Það hefur heldur aldrei verið eins mikilvægt að berjast fyrir auknum mannréttindum og jafnrétti. Það verður vonandi, og mér heyrist það, áfram höfuðáhersla í íslenskri þróunarsamvinnu.