þróunarsamvinna og Covid-19.
Herra forseti. Ég þakka aftur fyrir þessa góðu og tímabæru umræðu. Mig langar að nefna nokkur atriði. Hv. þm. Logi Einarsson sagði mig hafa sagt að allt hefði að mestu gengið samkvæmt áætlun, en ég tiltók sérstaklega að verkefni okkar í Malaví og Úganda hefðu að mestu gengið samkvæmt áætlun. Ýmislegt annað og mjög margt hefur hins vegar farið úr skorðum og Covid-19 hefur aukið áskoranir í framkvæmd þróunarsamstarfs talsvert. Hv. þm. Kolbrún Baldursdóttir bar fram spurningar sem ég tel mig hafa svarað, öllum nema þeirri sem ég náði ekki að svara í fyrri ræðu. Svarið er: Fyrirhuguð er greining á þróunarsamvinnustarfi Íslands á tímum Covid-19 og niðurstöðu er að vænta með vorinu. Það verður því áhugavert að fara í gegnum það og það er eitthvað sem við þurfum líka að skoða ofan í kjölinn.
Það er alveg ljóst að við höfum staðið frammi fyrir miklum áskorunum í starfi okkar, en í því felst líka mikill lærdómur, hvernig við höfum brugðist við, sem við getum sannarlega nýtt. Þetta hefur líka kallað á breytt vinnubrögð og hluti þeirra vinnubragða er kannski eitthvað sem við viljum viðhafa áfram og halda í. Í Covid og undanfarin ár höfum við hækkað hlutfall til þróunarsamvinnu í 0,35%, en það er rétt hjá hv. þingmanni að Sameinuðu þjóðirnar tala um 0,7% og það höfum við kvittað upp á. En við erum ekki eftirbátar heldur erum við yfir meðaltali í OECD. Við getum svo haft þá skoðun að við eigum að vera meira en yfir meðaltali sem ein ríkasta þjóð í heimi, en við höfum verið að bæta í. Árið 2027, í samanburði við 2023, mun framlagið hækka samkvæmt áætlunum um 3 milljarða, sem er þá 26% hækkun. En það er sorglegt að finna fyrir því og sjá að í gegnum þetta tímabil hefur þurrkast út árangur sem við höfum barist við að ná saman. Það þýðir að verkefnið stækkar og ekki er það að minnka núna með stríði í Evrópu og (Forseti hringir.) öllu því sem er fram undan. Það er því eins gott að bretta upp ermar og átta sig á því hvaða afleiðingar það hefur þegar við tökum ákvarðanirnar sem við höfum verið að taka.