152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[15:01]
Horfa

Viktor Stefán Pálsson (Sf):

Virðulegi forseti. Frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi er mikið framfaramál og mun styrkja faglega umfjöllun innan spítalans og auka á gæði þjónustu fyrir notendur og bæta stjórnun hans. Með frumvarpinu fá stjórnendur aukið aðhald en jafnframt stuðning til að veita eins góða heilbrigðisþjónustu og kostur er og notendur eiga rétt til.

Í ræðu hv. þm. Óla Björns Kárasonar fór hann yfir samsetningu stjórnar. Þar komu fram fjölmargar góðar athugasemdir sem vert er að gefa gaum. Eins og málið horfir við mér og greint er frá í athugasemdum við frumvarpið er verið að leita eftir einstaklingum sem hafa víðtæka þekkingu og reynslu og snúa að því hvernig spítalinn veitir heilbrigðisþjónustu og hvernig standa skuli að menntun heilbrigðisstétta og vísindarannsókna. En þekkingin er ekki bundin við þessa þætti eina og því ætti ekki að koma í veg fyrir að aðrir taki sæti í stjórninni þar sem einnig er kveðið á um að aðilar hafi þekkingu á rekstri og áætlanagerð. Það kann að vera að þetta sé ekki nægjanlegt og að upptalningin hindri að hæfir einstaklingar geti tekið sæti í stjórninni og þá er eðlilegt að slíkt verði skoðað nánar við meðferð málsins hér á Alþingi. Það er í samræmi að fá sem víðtækust sjónarmið þegar ákvarðanir eru teknar um skipulag og áætlanagerð og eftirlit með því að spítalinn sinni sínum lögbundnu skyldum sem honum eru ákvarðaðar í lögum.

Hv. þm. Óli Björn Kárason benti jafnframt á að hlutverk þeirra tveggja starfsmanna, sem ætlað er að sitji í stjórn spítalans, sé ekki í samræmi við hefðbundnar skyldur stjórnarmanna og vil ég taka undir þau sjónarmið. Miðað við texta frumvarpsins er ljóst að hlutverk starfsmanna er áheyrnarhlutverk þó með málfrelsi og tillögurétt. Alþingi hefur til meðhöndlunar þingsályktunartillögu um atvinnulýðræði, fyrirkomulag sem er vel þekkt víða erlendis, fyrirkomulag sem gengur út á að auka rétt starfsmanna til að hlutast til um ákvarðanatöku á vinnustað sínum. Atvinnulýðræði er hægt að útfæra með margvíslegum hætti; allt frá aukinni upplýsingagjöf til starfsmanna yfir í að starfsmenn komi að sameiginlegri ákvarðanatöku með stjórnvöldum um hvernig haga skuli starfsemi. Þau rök hafa verið færð fyrir auknu atvinnulýðræði að með slíku fyrirkomulagi megi auka hagkvæmni og framleiðni og bæta starfsánægju starfsmanna. Þetta er þróun sem ekki sér fyrir endann á og ber vott um nútímastjórnunarstíl og -mannauðsmál. Það væri því e.t.v. rétt að ganga lengra í þessum málum en frumvarpið kveður á um og auka við réttindi og skyldur starfsmanna í stjórn og gefa þeim hreinlega atkvæðisrétt á fundum stjórnar. Hvernig standa skuli að vali á starfsmönnum, sem var rætt sérstaklega hér í gær, er sérstakt úrlausnarefni, en það ætti nú að leysast, held ég, við meðferð málsins á Alþingi.

Þá langar mig til að víkja að aðkomu notendaþjónustu spítalans. Það er að mínu mati nauðsynlegt að sjónarmið notenda komist að við stjórnunina. Hafa hagsmunaaðilar talað á sömu nótum og bent á að nauðsynlegt sé að veita notandafélögum þetta sama tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri þegar kemur að skipulagi, áætlanagerð og innra eftirliti með starfseminni. Í þessu sambandi hefur m.a. verið bent á ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem og að neytendur heilbrigðisþjónustu þurfi að hafa virka aðkomu að meðferð sem þeim er veitt og að hlusta þurfi hvernig upplifun þeirra er. Komið er að einhverju leyti til móts við þetta í 4. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um notendaráð. Sú útfærsla er góð eins langt og hún nær. Slíkt ráð hefur hins vegar ekki sama hlutverk og stjórn og verður ekki séð að aðkoma notenda fái sömu vigt og ef þau sjónarmið myndu fá að hljóma inni í stjórn spítalans þar sem ákvarðanatakan á sér sennilega stað. Það er því rétt að Alþingi skoði hvort rétt sé að fulltrúar notenda, einn eða tveir, fái sambærilegt hlutverk og starfsmönnum er ætlað samkvæmt frumvarpinu, þ.e. að þeir fái setu á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt. Það kom líka fram í umræðum fyrr að það væri kannski erfitt að finna út úr því, það væru stórir hópar notenda sem hefðu kannski ólík sjónarmið og upplifun, en ég held að það mætti rótera þessu þannig að á vissu árabili kæmust fjölmörg sjónarmið á framfæri.

Ég vil einnig varpa því fram hvort ekki sé rétt að kveða á um sambærilegar stjórnir fyrir heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Í andsvörum hæstv. heilbrigðisráðherra kom fram að það kynni að verða gert í framhaldinu ef vel tekst til með stjórn Landspítalans. Sá sem hér stendur hefur fulla trú á að vel muni takast til og að ekki séu forsendur til að efast um annað. Ef Alþingi telur að þetta fyrirkomulag henti Landspítalanum tel ég að sömu sjónarmið eigi við að flestu leyti varðandi starfsemi sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana úti á landi. Það er ekki eftir neinu að bíða að mínu mati. Ég tel að stjórnir þessara sjúkrastofnana á landsbyggðinni ættu að koma að því að marka langtímastefnu, yfirfara starfsáætlun og ársáætlun og leggja mat á þessar áætlanir og mælikvarða sem stofnanirnar setja sér með sama hætti og gert er á Landspítala. Jafnframt myndu slíkar stjórnir vera viðkomandi forstjóra til aðstoðar varðandi ákvarðanir við rekstur og starfsemi þeirra.

Að lokum vil ég taka undir þau sjónarmið sem fram hafa komið fyrr í umræðunni um hlutverk stjórnar gagnvart forstjóra, þ.e. hvort rétt væri að forstjóri sæti í umboði stjórnarinnar og stjórnin hefði þá húsbóndavald yfir forstjóra. Ég er viss um að við meðferð frumvarpsins á Alþingi muni þessi sjónarmið verða skoðuð og ég er sannfærður um að endanleg lög verði þannig úr garði gerð að full samstaða náist meðal þingmanna.