heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Hún var áhugaverð, umfjöllun hv. þingmanns um atvinnulýðræði. Mér finnst einmitt áhugavert í þessu frumvarpi, og eins og kemur fram hérna í samráðsferlinu, að það hafi verið ákall um aðkomu notenda, sem hv. þingmaður talaði um að ættu að vera með málfrelsis- og tillögurétt. Ég velti því fyrir mér, alveg eins og hvað varðar fulltrúa starfsmanna sem eru með málfrelsis- og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt, hvort notendur ættu ekki líka að vera með málfrelsis- og tillögurétt og einnig atkvæðisrétt. Ég átta mig ekki alveg á því af hverju það þarf endilega að undanskilja atkvæðisréttinn hjá þessum hópum. Ég veit ekki hver hugsunin er eiginlega þar á bak við og velti fyrir mér hvort hv. þingmaður geti gefi mér smá innsýn inn í það þar sem fjallað er um atvinnulýðræði, hversu langt það nær ef atkvæðisrétturinn er undanskilinn. Þegar allt kemur til alls þá er það þannig sem ákvörðunin er tekin og ef ákvarðanir eru ekki einu sinni að hluta til á forsendum bæði starfsmanna og/eða notenda, hversu langt göngum við þá í rauninni í atvinnulýðræði ef við prófum það ekki einu sinni? Það eru tveir fulltrúar starfsmanna en ekkert atkvæði. Kannski eitt atkvæði. Af hverju ekki tvö? Ég held að smá umfjöllun um atvinnulýðræði væri mjög hjálpleg fyrir þetta frumvarp.