heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langaði að fara í annan punkt sem hv. þingmaður nefndi sem var um það hver ræður yfir hverju. Ég og held ég hv. þm. Óli Björn Kárason ræddum í gær að það væri svolítið skrýtið að hafa bæði stjórn og forstjóra og allt skipað af ráðherra og enginn í rauninni yfir neinum. Hv. þingmaður nefndi að þetta væri eitthvað sem þingið þyrfti að tækla í meðhöndlun sinni á þessu máli. Mig langaði að heyra hver væri skoðun hv. þingmanns á því. Á stjórnin að skipa forstjóra eða ætti þetta vera eins og þetta er? Hver er skoðun hv. þingmanns á því?