heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir annað andsvar. Skoðun mín er sú að það þarf að vera skýrt umboð sem stjórnin hefur. Hún þarf að hafa ákveðnar leiðbeiningar og í rauninni einhvern ramma um það hvað stjórnin getur gert og hvað hún getur ekki gert. Bent var á í umræðum að þetta þekktist víða, að það væri stjórn sem ræður forstjóra. Út frá því hvernig tekist hefur til með aðrar stjórnir held ég að það væri fyrirkomulag sem væri mjög áhugavert að skoða, hvort stjórnin ætti ekki að hafa rýmra umboð til að hafa húsbóndavald yfir forstjóra.