heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Það má kannski segja að með þessu sé verið að hverfa aftur til gamalla tíma eða til baka með þær ákvarðanir sem teknar voru á árinu 2007 þegar stjórn var lögð niður með lögum. Það er í raun og veru verið að viðurkenna að átt hafi sér stað mistök í stjórnsýslunni með þeim gjörningi sem gerði forstöðumenn einráða og þeir heyrðu þá bara beint undir ráðherra. Ég hjó eftir því þegar hv. þingmaður nefndi að ef það ætti að setja stjórn yfir spítalanum ætti að setja stjórn yfir önnur sjúkrahús. Þannig var það líka á öðrum stöðum úti á landi þar sem sjúkrahús voru til staðar, þar voru stjórnir sem stýrðu spítalanum. Ég myndi gjarnan vilja fá aðeins dýpri umræðu um það hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér að skipaðar yrðu stjórnir yfir sjúkrahúsunum á nýjan leik. Félag eldri borgara á Suðurnesjum ályktaði um daginn og skoraði á heilbrigðisráðherra að taka upp þennan hátt að nýju á t.d. á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, að þar yrði skipuð stjórn. Bæði bæjarráð og bæjarstjórn Reykjanesbæjar tóku undir að þetta gæti verið leið til þess að koma skoðunum heimamanna betur að. Mig langar að biðja hv. þingmann að fara betur ofan í þetta.