152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[15:25]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég sakna þess tíma þegar heimamenn höfðu aðgengi að stjórnun sjúkrahússins heima hjá mér, af því að það skiptir máli að hjarta svæðisins fái að slá. Oft og tíðum eru stjórnendur þessara stofnanna aðkomufólk sem hefur jafnvel verið sent af ráðuneytinu til þess að stjórna viðkomandi stofnun. Fólk keyrir þá, í þessu tilfelli Reykjanesbrautina á morgnana, en kannski ekki. Kannski er það ekki á staðnum og ekki í sambandi við samfélagið. Við erum auðvitað líka með mörg sveitarfélög á bak við eitt héraðssjúkrahús og raddir sveitarfélaganna þurfa (Forseti hringir.) heyrast. Ég held að það væri af hinu góða (Forseti hringir.) ef þessi hugmynd hv. þingmanns kæmist á borðið.