heilbrigðisþjónusta.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, nánar tiltekið því hvernig stjórna eigi stærstu heilbrigðisstofnuninni á Íslandi, stofnun sem hefur þurft að ganga í gegnum erfiða tíma síðustu ár, stofnun sem hefur lyft grettistaki og gert hluti þrátt fyrir takmarkað fjármagn og skort á starfsfólki, þar sem ekki er nægilega vel borgað fyrir þau erfiðu störf sem það vinnur. Það er því mikilvægt að slík stofnun hafi á að skipa stjórn sem getur stutt stofnunina í því að komast í gegnum þá erfiðleika sem hún á við að etja núna, bæði vegna fortíðarvanda, heimsfaraldurs og einnig þeirra breytinga sem munu verða á okkar samfélagi á næstu árum.
Mikið hefur verið rætt um það undanfarið ár a.m.k. að það þurfi að auka skilvirkni og þurfi að bæta afköst, og ýmis falleg orð notuð um það hvað þurfi að gera. En sannleikurinn er sá að við erum að ganga í gegnum miklar samfélagslegar breytingar. Eitt af því sem við munum þurfa að ganga í gegnum er stafræn umbylting heilbrigðiskerfisins og þá er mikilvægt að í stjórn stofnunar eins og Landspítalans sé fólk sem hafi skilning á því hver áhrif slíkrar umbyltingar eru. Þá langar mig að fjalla um það sem segir í 1. mgr. 8. gr. a. Þar segir:
„Í stjórn skulu sitja einstaklingar sem hafa þekkingu á rekstri og áætlanagerð, á heilbrigðisþjónustu og vísindarannsóknum á heilbrigðissviði og menntun heilbrigðisstétta og á opinberri stjórnsýslu og reglum stjórnsýsluréttar.“
Á meðan þetta eru allt góð atriði, sem svo sannarlega einhverjir af stjórnarmönnunum þurfa að hafa, þá langar mig að benda líka á það sem kemur fram í umfjöllun um það hvernig stjórnarmenn sjúkrahúsanna í Noregi eru valdir. Þar segir, með leyfi forseta, að þeir þurfi að hafa „almennt breiða þekkingu af ýmsum málefnasviðum, svo sem heilbrigðisþjónustu, rekstri, stjórnun, upplýsingatækni, hag- og viðskiptafræði og lögfræði.“
Jafnframt er í greinargerðinni, undir þættinum um samráð, mér tókst ekki að lesa úr því hvaðan þessar hugmyndir kæmu, talað um þróun og nýsköpun, m.a. með tilliti til tækniþróunar og þróunar í sjúkdómsbyrði. Mér tókst alla vega ekki að finna að þetta tvennt hefði ratað inn í sjálft frumvarpið en ég tel afar mikilvægt að við séum með stjórn sem hafi a.m.k. einhverja stjórnarmeðlimi sem hafi skýran skilning á því hvað þetta þýðir. Til dæmis væri hægt að fá aðila sem hafa leitt stafræna umbyltingu innan annarra fyrirtækja eða annarra stofnana og nýta þá þekkingu til að aðstoða forstjóra og Landspítalann í þeirri vegferð sem fram undan er, því að ekki viljum við hafa það þannig að hæstv. heilbrigðisráðherra ráði framsýnan forstjóra sem hafi skilning á því hvað þurfi að gera en svo sitji í stjórninni fólk með hugarfar fortíðarinnar sem ekki skilur það mikilvægi sem felst í því að tækla stafrænu umbyltinguna vel.
Það er einnig mikilvægt að í þessari stjórn sé fólk sem hafi og geti verið rödd fólksins sem raunverulega er innan veggja spítalans. Það er allt of algengt að við séum hrædd við það að hafa fólkið sjálft, starfsmenn eða notendur eða fulltrúa þeirra, hluta af stjórninni. Sannleikurinn er sá að í þeim stjórnum sem virkja starfsmennina, sem virkja notendurna, eru vandamálin oftast tækluð fyrr og framsýnin og lausnirnar fundnar á auðveldari máta. Því langar mig að hvetja eindregið hv. velferðarnefnd, sem fer yfir þetta frumvarp, til að skoða það að þeir sem í dag eru fulltrúar starfsmanna í stjórninni séu ekki áheyrnarfulltrúar heldur séu raunverulegir fulltrúar með atkvæðisrétt og þá einfaldlega séu settar góðar reglur í kringum það hvernig þessir fulltrúar eru valdir og hvernig þeir tryggi að rödd allra starfsmanna heyrist innan stjórnar.
Að sama skapi tel ég mikilvægt að einhver fulltrúi úr því notendaráði sem kynnt er í 4. gr. frumvarpsins sitji a.m.k. sem áheyrnarfulltrúi hjá stjórn. Ég vísa alfarið á bug þeirri hræðslu að fulltrúarnir í notendasamráðinu geti ekki komið sér saman um að einhver einn þeirra sé fulltrúi í stjórn. Ég þekki þetta fyrirkomulag bara úr mörgum stjórnum þar sem félagasamtök koma sér saman um það að einhver mæti sem fulltrúi allra. Það virkar mjög vel og myndi tryggja að þeirra rödd heyrðist líka, nokkuð sem við þurfum að vera tilbúin til að hlusta á vegna þess að notendurnir geta sagt okkur miklu meira um það hvernig þjónustan er, hvar þarf að laga hluti, heldur en kannski einhverjar excel-töflur sem sendar eru inn á stjórnarfund.
Við höfum talað margt um það hvernig skipa skuli þessa stjórn, hvort hún skuli síðan skipa forstjóra eða hvernig þetta eigi allt saman að vera og ég tel mjög mikilvægt að við hugsum þetta vel, ekki bara fyrir stjórn Landspítalans heldur almennt í þeim opinberu stofnunum og hlutafélögum og öðru sem við erum með, að við hugsum vel hvernig þessi uppsetning sé gerð á þann máta að útkoman verði sem best.
Við þurfum líka að passa að inn í stjórn svona stofnunar séu ekki bara valdir einhverjir vegna þess að viðkomandi kaus réttan flokk eða, eins og í Bandaríkjunum hefði það verið, gaf nógu mikið í kosningasjóðina, sem betur fer erum við ekki þar, heldur að þarna sé valið fólk með reynslu og þekkingu sem virkilega nýtist í því gríðarstóra verkefni sem fram undan er, í að taka Landspítalann og koma honum á næsta stig þar sem við getum treyst því að sjúklingar fái hágæðaþjónustu fljótt og auðveldlega, þar sem starfsfólk sé ánægt í vinnunni og vilji vinna. Þetta getum við, ef við vinnum saman að þessu, ef við tæklum þessa hluti og erum tilbúin að takast á við þau vandamál sem eru og finna lausnir. Ég treysti hæstv. heilbrigðisráðherra til að nýta sér það að hér á Alþingi er svo sannarlega vilji til þess að bæta heilbrigðiskerfið. Þó að við séum í öðrum flokki þá erum við til í að vera saman í liði þegar kemur að því að tryggja að Landspítalinn virki vegna þess að við vitum aldrei hvenær við sjálf, fjölskyldur okkar eða vinir þurfa á þessari þjónustu að halda og þá vonum við sko sannarlega að þau fái eða við fáum þá þjónustu sem við þurfum.
Stöndum saman í því að finna bestu lausnirnar á þessu. Ég hvet hv. velferðarnefnd til að vinna saman í þessu, að vinna með ráðuneytinu og að ráðuneytið komi með opinn hug, rétt eins og við öll sem hér sitjum.