152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[15:42]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Minn bakgrunnur, áður en ég fór að vinna við hjálparstarf, er tölvunarfræði. Eitt af því sem við uppgötvuðum í þeim geira fyrir 15–20 árum var að við þyrftum einmitt að hlusta á notendur, það væri ekki hægt að búa bara til einhver kerfi og einhver forrit án þess að tala við þá. Sem betur fer er þessi skilningur, að við þurfum að hlusta á notendurna, farinn að dreifa sér í öll kerfi þjóðfélagsins. Það er satt, sem hv. þingmaður segir, að stundum verður maður að upplifa hlutina sjálfur til að átta sig á því hvað megi betur fara. Ég ætla alls ekki að óska hæstv. heilbrigðisráðherra þess að hann þurfi að upplifa þetta kerfi sjálfur. En það eru sögur héðan um fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem allt í einu skildu að eitthvað væri að þegar þeir sjálfir lentu í því að þurfa að fara inn á spítala. En það er hægt að hlusta á fólk sem er að fara í gegnum þetta, hlusta á sjúklingana, hlusta á notendurna, hlusta á starfsfólkið. Það er eitt það mikilvægasta sem við getum gert og ég er þakklátur fyrir það að hæstv. heilbrigðisráðherra situr hér og hlustar og skrifar niður vegna þess að það þarf að taka þessar upplifanir og læra af þeim og snúa þeim yfir í lausnir en ekki að búa í glerhúsi og halda að ekkert sé að gerast.