heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég heyri að ég og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson erum algerlega á sömu blaðsíðu. Mér finnst það mjög gott og ég óska eftir því að ráðherrann verði það líka, hann mun kannski tjá sig um það. En þetta er einmitt málið. Sem sálfræðingur til 30 ára vil ég þó vara við öðru: Það er eitt að hlusta og annað að hlusta. Það er nefnilega hægt að sitja og hlusta og láta sem maður sé að hlusta og meðtaka allt en vera síðan ekkert að hlusta og gera ekkert með það. Það er líka hægt að nota virka hlustun og vera ákveðinn í því að hlusta þannig að maður ætli að meðtaka, skilja og skoða málið og flytja það allt yfir í einhvers konar framkvæmd og fara síðan til baka og athuga hvort það hafi skilað sér. Það eru ótalmargar gerðir af þessu hlustunarrófi og ég hvet þá sem munu halda áfram með þetta mál til að hafa það í huga að ný tækni er komin til sögunnar og ný hugmyndafræði, nýr skilningur, hvert sem litið er. Það eru ekki lengur einhverjir toppar sem eiga að ákveða hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Svo kemur veikt fólk og það verður bara að gjöra svo vel að sitja og standa eftir einhverju kerfi sem enginn hefur spurt þau um. Þessi risastóra og flókna stofnun sem við erum enn að reyna að finna út hvernig við getum látið virka — ég vona að við förum að heyra hvað fólk er að segja, hafa samráð og setja sig í spor fólks og fara bara alla leið, setjast við rúmbrík fólksins og tala við það. Hvernig líður þér? Hvað finnst þér? Hverju þarf að breyta? Og þannig mætti halda áfram.