152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[15:49]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef maður horfir aðeins til baka þá hefur umræðan um Landspítalann verið mjög neikvæð bara svona yfir höfuð. Við sjáum sýknt og heilagt fréttir um viðvarandi halla Landspítalans og það gangi bara ekki nokkurn skapaðan hlut að koma honum innan ramma fjárlaga og því þurfi að breyta með einhverjum hætti. Ég velti fyrir mér núna hvort tilgangurinn með þessu frumvarpi sé að að elta þá umræðu, það sé verið að setja einhverja — ég veit ekki hvað ég á að kalla þá sem eiga að fylgja eftir fjárlagagerðinni og sjá til þess að spítalinn sé innan þessa ramma sem fjármálaráðherra hvers tíma ákveður, ekki endilega heilbrigðisráðherra. Ég verð að segja að ég hef svolitlar áhyggjur af því að það sé þannig í frumvarpinu að það sé ráðherra sem skipi sjö manna stjórn, af því að það eru ekki allir ráðherrar velviljaðir almennri heilbrigðisþjónustu þó að sá sem nú situr sé það. Þannig að ég velti fyrir mér: Er rétt að það séu einhverjir aðrir og fleiri en bara ráðherra sem skipi stjórnina í gömlu lögunum frá því um 1990? Þá var þetta gert með öðrum hætti. Ég vil biðja hv. þingmann að velta því aðeins upp með mér hvort það væri hollt að það væru fleiri sem skipuðu í þessa stjórn en bara ráðherra.