152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[15:51]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Einarssyni fyrir andsvarið. Það skiptir að sjálfsögðu máli hverjir sitja í stjórninni og hverjir skipa í stjórnina. Við sjáum því miður allt of mikið af því að fólk er skipað í stjórnir, annaðhvort af því að það kýs einhvern ákveðinn flokk, af því að það er kannski fyrrverandi alþingismenn, af því að það er kannski fulltrúi einhvers aðila sem þarf að hafa ítök. Þetta eru allt saman slæmar skipanir í mínum huga. Það er mjög mikilvægt að þegar þú skipar stjórn yfir jafn mikilvægri stofnun og Landspítala að þar sértu ekki bara að skipa það sem ég kalla stundum excel-púka, einhverja sem eltast við það hvort búið sé að eyða 1 kr. of mikið hér eða 1 kr. of mikið þar, fólk sem skilur t.d. ekki að stundum þarf að fjárfesta í ákveðnum hlutum til að draga úr kostnaði í framtíðinni. Það eru ófá dæmi um nákvæmlega það að það hafi verið skipaðir aðilar í stjórnir sem ekki skilja framsýni og nýsköpun og stafræna umbyltingu.

En svo ég svari spurningu hv. þingmanns um hvort ráðherra eigi einn að skipa í stjórn þá svara ég til baka með þessari spurningu: Er stjórn eitthvað betur skipuð ef einhverjir fulltrúarnir eru valdir af þingflokkum á Alþingi? Stundum já. Stundum nei.