heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Við þekkjum dæmi þess að alþingismenn hafi verið skipaður í veigamiklar stöður, svo sem eins og seðlabankastjóra og þess háttar. Stofnun eða spítali er ekkert annað en það fólk sem vinnur þar. Við sjáum bara að ótrúlegt kraftaverk hafa gerst núna undanfarna mánuði og undanfarin misseri þar sem starfsmenn hafa lyft grettistaki við að halda þessari þjóð gangandi og halda henni frá því að upplifa margar þær hörmungar sem önnur lönd hafa upplifað. Þess vegna velti ég fyrir mér, af því að þingmaðurinn nefndi hér excel-púkana; starfsmenn, þekkja stöðuna vel inni á spítalanum. Þeir þekkja aðbúnaðinn, þeir þekkja álagið, þeir þekkja vinnutímafjöldann sem þeim er uppálagt að skila. Væri það þá ekki rétt að þessir starfsmenn sem yrðu skipaðir væru eitthvað meira en bara áheyrnarfulltrúar, að þeir hefðu eitthvað meira um málin að segja í framhaldinu ef það á að útvíkka þetta, að það séu fleiri en bara forstjórinn sem eiga að ráða þessu?
Varðandi það hvort þingflokkar eigi að ráða í stjórnir þá veit ég ekki alveg hvort það sé rétt. Ég velti bara fyrir mér einhvers konar svæðisráði sveitarfélaganna sem umkringja þá stofnun sem við erum að ræða um. Af því að við erum að tala um þjóðarsjúkrahúsið okkar þá er ég ekkert viss um að ég geti alltaf treyst einhverjum ráðherra til að sjá um að þessi stjórn sé rétt skipuð. Það liggur ekkert fyrir í þessu frumvarpi hverrar gerðar þetta fólk á að vera sem á að setjast í þessa stjórn. Hefur það samúð með þeirri þjónustu sem verið er að veita eða hefur það bara samúð með því fjármagni sem verið er að veita til þeirrar stofnunar sem um ræðir?