152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[15:58]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég tel að hér sé um mjög áhugaverða löggjöf að ræða og mikilvæga að mörgu leyti. Þetta frumvarp er lagt fram, eins og fram kemur í greinargerðinni, með vísan til áherslumála sem fram koma í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að staða og hlutverk Landspítalans sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og sérstök áhersla lögð á að fylgja uppbyggingu gjörgæslu- og bráðadeildar.

Við höfum heyrt í mörg ár, og allt of lengi, umræðuna um Landspítalann, hallarekstur Landspítalans, rekstrarvanda Landspítalans, fjárskort Landspítalans, ástandið á bráðamóttökunni, undirfjármögnun Landspítalans, ástandið hjá starfsmönnum Landspítalans, um sjúklinga liggjandi á gangi. Ég tel að þetta frumvarp muni ekki breyta ástandinu eitt og sér. Það er alveg kristaltært í mínum huga. Það mun vissulega styrkja stjórnina að einhverju leyti en það er ekkert nýtt undir sólinni. Eins og fram kemur í greinargerðinni var ráðgjafarnefnd að störfum sem var til að efla tengsl Landspítala við þjóðfélagið og mögulega notendur þjónustunnar. Eins og fram kemur í greinargerðinni var umrædd ráðgjafarnefnd ekki skipuð í tíð laganna, þ.e. núgildandi laga, fyrr en í júní 2018. Það eru tæp fjögur ár síðan þannig að ekki er komin sérstök reynsla á þau lög og það fyrirkomulag sem nú gildir. Þar á undan var læknaráð og hjúkrunarráð að störfum til að veita fagleg ráð til yfirstjórnar spítalans.

Hugsunin með því sem nú er verið að reyna að gera, og maður sér alveg, er að nota hlutafélagaformið, stjórn hlutafélaga. Það form er gríðarlega mikilvægt og merkilegt í sögu hins vestræna heims, alveg ótrúlega farsælt. Það er verið að nota hluta af því, þ.e. stjórnina, og setja það ofan á ríkisstofnun. En málið er að hlutafélag er allt annars eðlis en ríkisstofnun. Í hlutafélagi eru það fulltrúar eigendanna sem hafa eftirlit með stjórnendunum, að þeir framkvæmi vilja og stefnu eigendanna. Ég sé það ekki í 1. gr. þessa frumvarps um stjórn Landspítalans. Mér finnst þetta svolítið eins og uppkast, hálfkarað verk. Það er sjö manna stjórn sem á að vera að störfum en það eru bara fimm með atkvæðisrétt. Þetta er því raunverulega fimm manna stjórn. Fulltrúar starfsmanna hafa bara málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.

Svona í gamni vil ég segja frá því að ég lærði fyrirtækjarétt bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi og stúderaði þetta aðeins í Evrópu. Í Þýskalandi t.d. er gríðarleg reynsla komin á það að starfsmenn hafi atkvæðisrétt og taki þátt í stjórnun fyrirtækja. Þar eru lög frá 1976 um það að þeir eigi að taka þátt. Það er miklu eldra ákvæði í lögunum. Þetta er kallað „Mitbestimmung“ eða „codetermination“ og það er svokölluð lýðræðisvæðing á rekstri fyrirtækjanna. Það er komin mikil reynsla á þetta og starfsmenn hafa atkvæðisrétt þar. Upphaflegu lögin eru frá 1854, „Oxford University Act“ í Bretlandi og lögin „Port of London Act“ frá 1908. Þannig að þetta er mjög gamalt.

Núna virðumst við ætla að koma með stjórn á Landspítalann með fulltrúa starfsmanna sem hafa aðeins málfrelsis- og tillögurétt en engan atkvæðisrétt. Þannig að þetta er eiginlega bara fimm manna stjórn og ég tel það vera algerlega vanhugsað. Það á einmitt að nýta þekkingu starfsmannanna með atkvæðisrétti. Það er verið að draga úr áhrifum. Ég get ekki lesið það öðruvísi, sérstaklega ef við horfum aftur til sögunnar um læknaráð og hjúkrunarráð. Ég hef ekki kynnt mér nákvæmlega hvernig ráðgjafarnefndin var skipuð en ég get ekki ímyndað mér annað en að það hafi verið sérfræðingar. En með þessu er raunverulega verið að draga úr vægi starfsmanna. Það verður mjög fróðlegt að sjá umsagnir hjúkrunarfélagsins og Læknafélags Íslands hvað þetta frumvarp varðar. En ég tel að það sé ljóður á þessu að fulltrúar starfsmanna hafi ekki atkvæðisrétt og séu ekki fullgildir stjórnarmenn.

Varðandi hlutverk stjórnarmanna eins og kemur fram í frumvarpinu þá skín svolítið í gegn að stjórnin á að vera stuðningur við forstjórann. Í 2. mgr. 1. gr. segir:

„Stjórn Landspítala skal, í samráði við forstjóra, marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum.“

Hvert er þá vald stjórnar til að marka langtímastefnu stofnunarinnar? Hún á að gera það í samráði við forstjórann, í samræmi við stefnumörkun ráðherra og hlutverk stofnana samkvæmt lögum. Svigrúmið til að marka langtímaáætlun og -stefnu fyrir stofnunina er nánast ekki neitt.

„Hún skal yfirfara árlega starfsáætlun og ársáætlun skv. 32. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, leggja sjálfstætt mat á þær og þau markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu innan tveggja vikna frá því að ársáætlun hefur verið lögð fyrir ráðherra til samþykktar.“

Fyrir mér er þetta ekki til að tala neitt um. Það þarf ekki stjórn til að sinna þessu hlutverki, þess þarf ekki. Það er miklu einfaldara að þetta sé bara gert á skrifstofu forstjórans og hann sjái um þetta með aðstoð aðstoðarmanna sem hann hafi til að sinna þessu lögbundna hlutverki eins og kemur fram í 32. gr. laga um opinber fjármál. Það vantar í þetta ákvæði, svo ég nefni dæmi, upplýsingar um reksturinn, þ.e. að veita Alþingi Íslendinga upplýsingar um reksturinn. Ég sit í fjárlaganefnd og það fyrsta sem maður tekur eftir er skortur á upplýsingum um rekstur Landspítala Íslands. Við fáum þær en þær eru einfaldlega ekki nógu góðar, ekki nógu læsilegar þannig að hægt sé að kynna sér hver rekstrarstaðan er. Það er kristaltært í mínum huga að þessi stofnun er undirfjármögnuð og það verulega. Það er það sem er vandinn. Þessi stjórn mun ekki leysa það. Það er alveg kristaltært.

Annað sem vantar í þetta mál er innri endurskoðun. Það kom fram í umræðum í gær um þetta mál, sem voru ágætisumræður, sem ég vissi reyndar fyrir, að það er enginn innri endurskoðandi hjá Landspítalanum þrátt fyrir 65. gr. laga um opinber fjármál, um innra eftirlit og innri endurskoðun, þar sem segir að stofnanir eigi að vera með innri endurskoðanda, með leyfi forseta:

„Forstöðumaður ríkisaðila í A1- og A2-hluta, eða eftir atvikum stjórn, ber ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits. Innra eftirlit felur í sér þær reglubundnu aðgerðir og ráðstafanir sem hlutaðeigandi aðili gerir til að stuðla að hagkvæmni rekstrar, öryggi fjármuna, áreiðanleika upplýsinga og almennt að því að markmiðum starfseminnar verði náð og fylgt sé lögum og reglum.“

Það er enginn innri endurskoðandi á Landspítalanum og ekki vitað til þess að það sé mikið innra eftirlit. Raunverulega ætti þetta að vera þannig að þetta væri innri endurskoðandi og svo ætti að vera innra eftirlit sem er á skrifstofu forstjórans. Það á að vera áhættustýring og það á líka að hafa eftirlit með því að verið sé að nýta fjármunina, t.d. að eldra fólk sé ekki í legurýmum sem eru allt of dýr. Ég hef heyrt sögur um það og lesið í fréttum, systir mín er reyndar hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni og ég hef heyrt ófáar sögur um ástandið þar sem ég tel ekki ástæðu að rekja hér. En það er alveg klárt mál að reksturinn getur verið hagkvæmari, bara ef horft er á legurýmin. Flæðisvandinn á bráðamóttökunni er algjörlega fáránlegur þannig að það er margt hægt að bæta. Það mun ekki gerast með þessari stjórn, það er alveg ljóst. Mér finnst hreinlega verið að auka búrókratíuna með því að bæta þessari stjórn við þegar ekki er einu sinni farið eftir lögum um opinber fjármál með innri endurskoðanda. Og talandi um áhættustýringuna. Hún þarf að vera þannig varðandi fjármögnunina og eftirlitið á að fela í sér að það sé alltaf hámörkun á nýtingu fjármagns, að allir sjúklingar fái hámarksþjónustu á sem ódýrastan hátt. Það er alveg ljóst þegar aldrað fólk er á Landspítalanum, hátæknisjúkrahúsi en ekki á hjúkrunarheimili sem er miklu ódýrara, að það er ekki verið að nýta peningana vel. Það er því klárt mál að það þarf í fyrsta lagi að uppfylla 65. gr. laga um opinber fjármál og það ætti að vera ákvæði í þessu frumvarpi um innri endurskoðun. Vissulega segir í 65. gr., „eftir atvikum stjórn“ sem ber ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits en það er raunverulega framkvæmdin á starfssviði hans. Það þarf að hafa innri endurskoðun sem kemur utan að. Það vantar inn í lögin líka.

Annað sem ég vek athygli á og mér finnst mjög sérstakt er það sem segir um forstjóra í 3. mgr. 1. gr.: „Forstjóri skal bera ráðstafanir sem, miðað við daglegan rekstur, eru mikils háttar eða óvenjulegar í starfsemi stofnunarinnar undir stjórn til samþykktar.“ Þá er spurningin: Hvaða ráðstafanir eru mikils háttar eða óvenjulegar? Það kemur ekki fram þarna. Síðan ber stjórnin ábyrgð gagnvart ráðherra á þeim ákvörðunum sem hún samþykkir. Það er gott og blessað. En stjórnin ræður ekki forstjórann. Stjórnin hefur ekki boðvald yfir honum. Ég get ekki séð það. Af hverju er það? Jú, það er vegna þess að forstjóri er skipaður af ráðherra. Það kemur fram í 38. gr. laga um réttindi og og skyldur starfsmanna ríkisins, eins og kemur fram í 3. mgr. 1. gr. Forstjórinn er skipaður af ráðherra. Hann ber ábyrgð gagnvart ráðherra samkvæmt 38. gr. og stjórnin ber líka ábyrgð gagnvart ráðherra á þeim ákvörðunum sem hún samþykkir. Þannig að við erum bæði með stjórn og forstjóra sem bera ábyrgð gagnvart ráðherra, tvöfalt kerfi. Þá er spurningin: Á hverju ber stjórnin ábyrgð og á hverju ber forstjóri ábyrgð? Hver ber ábyrgð á stofnuninni gagnvart ráðherra, hvort er það stjórn eða forstjóri? Þetta er klassískt vandamál hvað ábyrgð varðar. Þegar verið er að fela einhverjum ábyrgð þarf það að vera mjög skýrt hver ber ábyrgðina. Það er ekki hægt að hafa bæði. Segjum að upp komi vandamál og forstjórinn segir bara: Það á að fjalla um þetta á stjórnarfundi, stjórnin ber ábyrgð á þessu, ég ber ekki ábyrgð á þessu. En samkvæmt erindisbréfinu er það forstjórinn þannig að þetta er ekki nægilega skýrt. Það verður einn að bera ábyrgð.

Annað sem er mjög sérstakt, finnst mér, er í 4. mgr. 1. gr., en þar segir:

„Formaður stjórnar Landspítala skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stjórnar og stöðu og árangri stofnunarinnar. Þá skal formaður gera ráðherra grein fyrir annars vegar þeim meiri háttar eða óvenjulegu ráðstöfunum sem stjórn hefur samþykkt …“

Formaður stjórnar gerir grein fyrir þessu en svo er líka forstjóri. Ef ég væri ráðherra, sem ég verð vonandi einhvern tíma en hvað um það, þá myndi ég spyrja: Bíddu, hver á að veita mér upplýsingar? Hvort er það forstjórinn eða formaður stjórnar? Ég myndi fara til forstjórans, það eru miklu meiri upplýsingar þar, hann er í þessu daglega. Bara þessi upplýsingagjöf til ráðherrans finnst mér líka vera óljós. Mér finnst þetta ekki nægilega vel unnið, ekki nægilega skýrt hvað þetta varðar. Ég veit ekki hvaða módel þeir hafa haft sér til fyrirmyndar vegna þess að ég tel að í svona stóru fyrirtæki verði að horfa á eitthvert módel annars staðar á Norðurlöndunum sem virkar, gengur vel. Það kemur ekki fram hérna.

Það er atriði sem mig langar að tala um, ég hef greinilega talað allt of lengi um ákveðna hluti, en mig langar að koma því að í lokin. Hér kemur fram:

„Við gerð frumvarpsins var meðal annars litið til stjórnskipulags sjúkrahúsa á hinum Norðurlöndunum en stjórnskipulag sjúkrahúsa á Norðurlöndunum er nokkuð fjölbreytt eins og fjallað er um í kafla 3 hér að aftan.“

Þar er fjallað um þrjú lönd, Svíþjóð, Danmörku og Noreg. Það kemur fram í textanum hérna að ætla megi að fyrirkomulag okkar í dag sé sambærilegt við það sem er í Danmörku. Þannig að við erum með danska módelið. Nú veit ég ekki hvort það er einhver spítali þar sem hægt er að horfa á og sjá að við séum með sama módel og þar. En ég spurði ráðherra eftir fínar umræður í gær um þetta og þá erum við að líta til Svíþjóðar hvað þetta frumvarp varðar. En það kemur ekki fram í umfjölluninni í greinargerðinni að við séum að líta til Svíþjóðar. Ég veit að ráðherra er búinn að fá mjög hæfan mann sér til ráðgjafar sem er forstjóri Karólínska sjúkrahússins sem er miklu stærri stofnun en Landspítalinn, sem er ekki stór sjúkrastofnun miðað við Norðurlöndin eða Evrópu eða í heiminum. Það er mjög mikilvægt að við getum rekið þjóðarsjúkrahús með sóma og ég ætla rétt að vona það að þessar umræður um Landspítalann fari að hætta. (Forseti hringir.) Það sem mér finnst vanta það er hvaða fyrirmynd í Svíþjóð er (Forseti hringir.) verið að hafa í huga hvað varðar það módel sem við erum að leggja fram í þessu frumvarpi.