152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[16:20]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi þetta með framleiðslutengda fjármögnun, þetta fjármögnunarkerfi, þá fékk ég þær upplýsingar frá hæstv. ráðherra að þetta væri til að auka gagnsæi fjármálanna. Það er eitt af stóru vandamálunum, alla vega miðað við mín störf í þennan skamma tíma í fjárlaganefnd, að fá upplýsingar um ástandið varðandi notkun fjármuna og í hvað peningarnir fara á Landspítala Íslands og það er mikill ljóður á því.

Það er sjálfsagt að hafa mann með fagþekkingu. Þetta er náttúrlega mikilsverð ákvörðun, á þessum tíma sem þetta er, þannig að ég sé enga sérstaka ástæðu til að gera athugasemd við það. En það sem ég geri athugasemd við er varðandi starfsmennina. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni varðandi starfsmennina, auðvitað eiga þeir að hafa atkvæðisrétt. Það er, eins og ég rakti í ræðu minni áðan, meira en áratugalöng reynsla komin á þátttöku starfsmanna í stjórnum fyrirtækja, hlutafélaga, og hér er um ríkisstofnun að ræða. Ég vek líka athygli á því að það er ráðherra sem skipar sjö manna stjórn. Nú er Alþingi Íslendinga að skipa stjórn í Landsvirkjun, Íslandspóst og fleiri fyrirtæki en svo þegar kemur að þjóðarsjúkrahúsinu þá á Alþingi ekki að skipa stjórnina. Ég tel að það væri miklu farsælla að Alþingi Íslendinga kæmi að því að skipa þessa stjórn og starfsmennirnir hefðu líka atkvæðisrétt. En ég tel raunverulega að hlutverk þessarar stjórnar — það er verið að reyna að setja hlutafélagafyrirkomulagið ofan á þessa(Forseti hringir.) mikilvægu ríkisstofnun en það er gert þannig að þetta er eins konar stuðningur. Jú, þeir taka mikilvægar ákvarðanir. Ég tel að þetta sé að þyngja störf forstjóra og yfirstjórnar spítalans sem hefur nóg á sinni könnu. Við þekkjum það öll að tíminn er mjög verðmætur, það eru takmörkuð gæði að hafa tíma, og þetta mun auka skrifræði og búrókrasíuna og þyngja mikið yfirstjórn spítalans. Ég tel að það hefði verið hægt að gera þetta miklu einfaldara og miklu auðveldara, bæði fyrir Alþingi og ráðherra.