152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[16:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af ábyrgðinni, sem er í rauninni ekki fjallað mikið um í þessu frumvarpi. Þá vek ég helst athygli á þessari setningu í frumvarpinu, með leyfi forseta: „Stjórn ber ábyrgð gagnvart ráðherra á þeim ákvörðunum sem hún samþykkir.“ Ég skil þetta ekki. Ég verð bara að viðurkenna að ég átta mig ekki á því hvað þetta þýðir. Þarna er stjórn sem tekur ákvarðanir, samþykkir það sem talað var um hérna varðandi langtímastefnu o.s.frv. en ber ábyrgð gagnvart ráðherra. Hvernig ábyrgð? er líka spurning sem við þurfum að spyrja. Hvað getur ráðherra þá gert? Segir hann: Heyrðu, þú verður að bera ábyrgð á þessari ákvörðun, þú þarna stjórnarmeðlimur? Og hvað? Afturkallað skipunina til tveggja ára? Er það ekki dálítið skringilegt? Þegar ráðherrann skipar gildir það skipunarbréf þá ekki venjulega út þann tíma, oft til fimm ára eins og með ríkisforstjóra? Það myndi væntanlega verða til þess að það er peningur í þessu, 20 milljónir sem fer í þetta þarna samkvæmt mati á áhrifum — viðkomandi stjórnmálamaður hefur þó ákveðinn rétt til setu og til þeirra launa út skipunartímann.

Ég velti líka fyrir mér varðandi þessa tveggja ára skipun: Veit hv. þingmaður um einhver fordæmi fyrir því að það sé bara skipað til tveggja ára í svona stjórnir? Aðrar stjórnir sem hv. þingmaður vísaði í er skipað í út kjörtímabilið eða alla vega á milli aðalfunda, þó að það sé hægt að breyta því þar inn á milli, en svona almennt séð yfir allt kjörtímabilið.