152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[16:24]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, þetta varðandi ábyrgðina er mjög áhugavert. Stjórnin ber ábyrgð gagnvart ráðherra á þeim ákvörðunum sem stjórnin samþykkir. Þá getur maður gagnályktað og sagt að forstjórinn beri ekki ábyrgð á þessum ákvörðunum, það er stjórnin, hann er alveg stikkfrí. Ef ég væri forstjóri myndi ég dæla inn í stjórnina ákvörðunum til að ég væri stikkfrí. En það er ekki þannig í raunveruleikanum, það er alltaf á endanum forstjóri sem myndi bera ábyrgð, það er hann sem framkvæmir ákvarðanir og annað slíkt, þannig að ég get ekki séð annað — segjum að þessi ábyrgð gagnvart ráðherra á þeim ákvörðunum sem stjórnin samþykkir leiði til þess að forstjórinn beri þá ekki ábyrgð. Jú, ef það væri dómsmál eða eitthvað svoleiðis — það er hægt að fara út í svoleiðis pælingar. En ábyrgðin í þessu ákvæði, í 1. gr. um stjórn Landspítalans, er mjög óljós. Hvenær er hún hjá stjórninni, hvenær hjá forstjóra? Svo er formaður stjórnar líka með ákveðna ábyrgð. Hann skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stjórnar og árangri stofnunarinnar. Segjum að hann gefi honum vitlausar upplýsingar. Hann ber þá væntanlega ábyrgð á því þannig að þarna er komin þriðja ábyrgðin. Mér finnst þetta vera allt of margir aðilar sem upplýsa ráðherrann, og vonandi þingið líka, um það hver staðan er í stjórn spítalans.

Annað sem ég vek líka athygli á er að í stjórn skuli sitja einstaklingar sem hafa þekkingu á rekstri og áætlanagerð, og líka á opinberri stjórnsýslu og reglum stjórnsýsluréttar. Ég fór í stjórnsýslulögin og stjórnin er ekki stjórnsýslunefnd þannig að hún er ekki að fara að taka ákvarðanir um réttindi og skyldur manna. Ákvarðanir stjórnar Landspítalans eru ekki stjórnsýsluákvarðanir þannig að ég skil ekki til hvers þessi þekking á opinberri stjórnsýslu og reglum stjórnsýsluréttar á að vera þarna. (Forseti hringir.) Það sem mér finnst vera þarna varðandi tvö ár og allt þetta — þessu er dembt þarna inn í (Forseti hringir.) og ber að skoða þetta í ljósi fyrri laga um fagráð, læknaráð og hjúkrunarráð. (Forseti hringir.) Svo er þessu dembt saman við hlutafélagaformið.

(Forseti (LínS): Hv. þingmenn eru minntir á að andsvör eru tvær mínútur.)