heilbrigðisþjónusta.
Virðulegur forseti. Þetta með ábyrgð stjórnar er mjög áhugavert svið, sérstaklega ábyrgð innan hlutafélaga og líka ábyrgð hluthafa og annað slíkt. Það eru miklar pælingar í þessu, þetta eru mjög flókin fræði, ég tala nú ekki um í hlutafélögum. Hlutafélög þurfa auðvitað að geta tekið áhættu. Stjórnendur þeirra þurfa að geta tekið áhættu í rekstri til að auka hagnað. Það er „risk and return“, áhætta og ábati, tenging þar á milli, og almennt séð er litið mjög vægt á skaðabótaskyldu stjórnarmanna og eigenda. Það er mjög frægt mál í gangi út af ópíóíða-málinu þar sem eigendur hlutafélags og stjórnarmenn eru í refsimáli en ég tel að varðandi þetta mál sé langt því frá að það eigi við. Afleiðing af ábyrgð getur verið missir stjórnarsetu og annað slíkt og það þarf að útskýra hver upptökin að mistökunum eru og annað slíkt, hver ber ábyrgð á málinu, til að geta greint það innan stjórnkerfisins, það er mikilvægt hvað það varðar. En eins og ég segi þá er óljóst hvert ábyrgðarhlutverkið er.
Ég tel líka, og það er mjög gott að hv. þingmaður kom inn á það — stjórnin á að leggja sjálfstætt mat á hlutina, hún á að marka stefnu og hafa samráð um hana o.s.frv. Það skiptir í sjálfu sér engu máli hvernig stefnan verður til svo lengi sem hún er góð. Það er stefnan sem skiptir máli. Það að vera í samráði og spjalli hingað og þangað við ráðherra og stjórnarmenn er algjört aukaatriði. Það er stefnan sjálf sem skiptir máli, hver hún er.
Það er líka talað um ráðstafanir, að forstjóri skuli bera ráðstafanir, sem eru mikilsháttar eða óvenjulegar, undir stjórn. Af hverju er ekki hægt að ákveða þetta? Hvað er það sem hann á raunverulega að gera? Hvaða ráðstafanir á hann að bera undir stjórn? Eru það mikilvægar ákvarðanir um að kaupa tæki eitthvað slíkt? Jú, jú, eitthvað svoleiðis. En það sem er undir hérna er það að verið er að troða hlutafélagaforminu yfir (Forseti hringir.) á þessa ríkisstofnun með þá sögu á bak við sem er læknaráð, (Forseti hringir.) fagráð, hjúkrunarráð og það allt, og reyna að blanda þessu saman í einn pott og það gengur ekki upp.